Málið harmleikur og ömurlegt í alla staði Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. apríl 2021 17:00 Kærasta mannsins kom að honum í sárum sínum fyrir utan heimili þeirra í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa. Vísir/vilhelm Verjandi manns sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að andláti manns í Kópavogi um helgina á síður von á því að gæsluvarðhaldsúrskurðinum verði áfrýjað til Landsréttar. Hann segir skjólstæðing sinn enn halda því fram að um slys hafi verið að ræða og lýsir málinu sem harmleik.
Þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins um helgina en tveimur sleppt. Sá þriðji var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag. Þegar kom fram um helgina að sá síðastnefndi bæri því fyrir sig að orðið hefði slys og hann væri niðurbrotinn vegna málsins. „Hann hefur átt erfitt uppdráttar með þetta og er bara að koma sér niður á jörðina,“ segir Unnsteinn Elvarsson, verjandi mannsins, í samtali við Vísi í dag. Maðurinn sé í miklu áfalli og miður sín vegna málsins. „Eins og hann lýsir þessu er þetta fjarri því að vera eins og fyrst kom fram í blöðunum. Hann vill meina að þetta hafi verið slys.“ Unnsteinn segir málið harmleik og „ömurlegt í alla staði.“ Þá telji hann að hugur mannsins sé hjá hinum látna og fjölskyldu hans. Það sé jafnframt vilji mannsins að málið verði upplýst. Unnsteinn segir að leiðir mannanna tveggja virðist hafa legið saman en telur ekki að þeir hafi þekkst. Að öðru leyti sé nú verið að reyna að ná utan um málið og lítið hægt að segja um stöðu þess að svo stöddu. Beðið er niðurstöðu vettvangsrannsóknar og krufningar. Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði í samtali við Vísi í morgun að þeir sem rætt hafi verið við í tengslum við rannsóknina hafi áður komið við sögu lögreglu. Maðurinn sem lést hét Daníel Eiríksson og var fæddur árið 1990. Kærasta hans kom að honum í sárum sínum fyrir utan heimili þeirra í Kórahverfi í Kópavogi að morgni föstudagsins langa. Hann lést af áverkunum en grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á hann.
Lögreglumál Kópavogur Mannslát í Vindakór Tengdar fréttir Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins. 4. apríl 2021 20:57 Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu. 4. apríl 2021 19:58 Sakborningur segist niðurbrotinn og að um sé að ræða slys Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina á andláti manns sem lést í Kópavogi um helgina segir að um slys hafi verið að ræða. Að sögn verjanda mannsins er hann niðurbrotinn vegna málsins að því er Rúv greinir frá. 4. apríl 2021 17:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Viktor Traustason verður í framboði Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Sjá meira
Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins. 4. apríl 2021 20:57
Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu. 4. apríl 2021 19:58
Sakborningur segist niðurbrotinn og að um sé að ræða slys Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina á andláti manns sem lést í Kópavogi um helgina segir að um slys hafi verið að ræða. Að sögn verjanda mannsins er hann niðurbrotinn vegna málsins að því er Rúv greinir frá. 4. apríl 2021 17:06