Líklegt að Framsókn fái viðbótarráðherra Heimir Már Pétursson skrifar 26. nóvember 2021 19:27 Ríkisstjórnarsáttmáli verður kynntur á sunnudag. Stöð 2/Einar Æðstu stofnanir stjórnarflokkanna á milli landsfunda koma saman á morgun þar sem stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar verður kynntur og borin upp til atkvæða. Ráðherrum verður líklega fjölgað um einn og stofnað verður nýtt innviðaráðuneyti.
Í stjórnarmyndunarviðræðum fyrri ára hafa leiðtogar stjórnmálaflokkanna oft reynt að fela sig fyrir fjölmiðlum. Þannig hefur það ekki verið í þetta skiptið. Viðræður þremenninganna hafa að mestu átt sér stað í Ráðherrabústaðnum og í dag gengu oddvitar stjórnarflokkanna þaðan út með nýjan stjórnarsáttmála í farteskinu. „Já, við vorum að leggja lokahönd á textann þannig að núna er verið ganga frá honum og lesa hann yfir og fleira sem þarf að gera. Við erum búin að boða okkar fólk, flokksráð, miðstjórnir og hvað þetta heitir; okkar flokksstofnanir til fundar seinnipartinn á morgun,“ segir Katrín. Þegar fyrra ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur var kynnt hinn 30. nóvember 2017 var það skipað fimm ráðherrum Sjálfstæðisflokks, þremur frá Framsóknarflokki og þremur frá Vinstri grænum sem einnig fengu forseta Alþingis í sinn hlut. Þá voru Sjálfstæðismenn með 16 þingmenn, Framsókn 8 og Vinstri græn 11. Eftir síðustu kosningar í september er Sjálfstæðisflokkurinn með 17 þingmenn, Framsóknarflokkurinn 13 og Vinstri græn 8. Sigurður Ingi hlakkar til að kynna nýja stjórn Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur lagt áherslu á að sameina ýmis verkefni í nýju innviðaráðuneyti. Er þetta alveg eins og þú vildir hafa það þegar lagt var af stað? „Það eru þrír í þessu sambandi og öll þurfum við að taka tillit til hvers annars. En heilt yfir finnst mér þetta spennandi og það verður gaman að kynna þetta um helgina,“ segir Sigurður Ingi. Meira fékkst ekki uppgefið um innihald stjórnarsáttmálans. Til að mynda um hvort Sjálfstæðisflokkurinn fái heilbrigðisráðuneytið en formaður Sjálfstæðisflokksins var rétt farinn úr Ráðherrabústaðnum þegar okkur bar að. Það hefur verið talað um fjölgun ráðherra, fjölgar þeim um einn eða tvo? „Það skýrist. En við höfum talað alveg skýrt um að það komi vel til greina,“ segir Sigurður Ingi. Líklega fær Framsóknarflokkurinn einn ráðherra til viðbótar og þá verður að teljast líklegast að embætti forseta Alþingis haldist hjá Vinstri grænum. Þetta kemur allt í ljós eftir þingflokksfundi stjórnarflokkanna á sunnudag þegar stjórnarsáttmálinn verður kynntur opinberlega. „Þessi stjórnarsáttmáli ber þess auðvitað merki að við erum búin að vinna saman í fjögur ár. Það eru ýmsir lærdómar sem hafa verið dregnir af því samstarfi. Annars er best að segja sem minnst þangað til þetta hefur farið í gegnum okkar flokksstofnanir,“ segir Katrín Jakobsdóttir.
Framsóknarflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Vinstri græn aldrei með minna fylgi Eltihrellirinn langoftast fyrrverandi maki Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Sjá meira