Bríet áfram í Eyjum

Bríet Ómarsdóttir í kröppum dansi í Evrópuleik með ÍBV á …
Bríet Ómarsdóttir í kröppum dansi í Evrópuleik með ÍBV á síðasta tímabili. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Bríet Ómarsdóttir og handknattleiksdeild ÍBV hafa komist að samkomulagi um að hún leiki áfram með kvennaliði félagsins á næsta tímabili.

Bríet er tvítugur línumaður sem er alin upp hjá ÍBV þar sem hún hefur leikið með liðinu í efstu deild undanfarin ár ásamt U-liði félagsins í næstefstu deild.

Hún hefur leikið með yngri landsliðum Íslands í gegnum tíðina og var valin efnilegasti leikmaður ÍBV árið 2020.

„Við erum ánægð að hafa Bríeti áfram í okkar röðum og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ sagði í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert