35 milljón punda maður sem enginn vill Valur Páll Eiríksson skrifar 23. júlí 2021 23:15 Drinkwater hefur ekki átt sjö dagana sæla frá skiptum sínum til Chelsea. vísir/getty Danny Drinkwater var eftirsóttur sumarið 2017 eftir frambærilega frammistöðu á miðju Leicester City sem hafði þá tekið þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins og unnið Englandsmeistaratitilinn ári áður. Hið sama er ekki hægt að segja um sumarið 2021.
Drinkwater er 31 árs gamall og uppalinn hjá Manchester United. Hann náði aldrei að festa sig í sessi þar á bæ og hafði ekki spilað leik fyrir félagið þegar Leicester City fékk hann, þá 22 ára gamlan, í sínar raðir árið 2012. Þá hafði hann aldrei spilað úrvalsdeildarleik og gengið misvel á láni hjá Huddersfield, Cardiff, Watford og Barnsley í neðri deildunum. Hann hafði þó sannað sig sem ágætis miðjumaður á B-deildarstiginu og varð að fastamanni hjá Leicester þar. Mikilvægur hluti af sigurliði Eftir tvö og hálft tímabil komst liðið upp í úrvalsdeild árið 2014 og á öðru ári sínu í deild þeirra bestu varð kraftaverk þar sem Leicester, sem spáð var neðsta sæti deildarinnar fyrir tímabilið, varð Englandsmeistarari undir stjórn Claudio Ranieri tímabilið 2015-16. Allt gekk upp hjá Leicester þetta tímabil eins og þetta skrautlega mark Drinkwater er dæmi um. Drinkwater hafði spilað frábærlega á miðjunni með Frakkanum N'Golo Kanté, sem var keyptur til Chelsea beint eftir deildarsigurinn og varð Frakkinn meistari þar á ný á fyrsta ári, tímabilið 2016-17. Drinkwater hélt áfram að spila vel hjá Leicester á meðan Kanté var horfinn á braut og hugðist Antonio Conte, stjóra Chelsea, að endurskapa samband Drinkwater og Kanté í Lundúnum er hann splæsti 35 milljónum punda og rándýrum fimm ára samningi á Englendinginn. Næturklúbbar og slagsmál Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Drinkwater á hans fyrsta tímabili hjá Chelsea. Hann spilaði alls 22 leiki fyrir liðið, þar af tólf í deild, og fæsta þeirra var hann í byrjunarliði. Conte var látinn fara eftir það tímabil og við af honum tók annar Ítali, Maurizio Sarri. Hann vildi ekkert með Drinkwater hafa og meiðslin héldu áfram að taka sinn toll. Ítrekaðar myndir sem birtust af honum á síðum gulu pressunnar að njóta næturlífsins í Lundúnum hjálpuðu eflaust ekki til. Þetta mark gegn Stoke í ársbyrjun 2018 var sjaldséð gleðistund hjá Drinkwater í bláum búningi Chelsea. Drinkwater hafði hins vegar engan áhuga á að gefa eftir þau 100 þúsund pund sem hann skildi fá borguð vikulega næstu árin og enginn brottfararhugur á honum. Við tók misheppnuð lánsdvöl hjá Burnley þar sem hann lenti í slagsmálum fyrir utan næturklúbb þremur vikum eftir að gengið í raðir félagsins. Hann spilaði einn leik áður en Sean Dyche skilaði honum til Chelsea í janúar. Dean Smith gaf honum þá tækifæri hjá Aston Villa eftir áramótin 2020 en þar spilaði hann aðeins fjóra leiki og lenti í slagsmálum á æfingu við Spánverjann Jota, leikmann liðsins. Endurreisn í kortunum? Í september 2020 opnaði Drinkwater sig í viðtali við Telegraph þar sem hann sagðist hafa átt í vandræðum utan vallar og hugðist ætla að koma ferlinum aftur á réttan kjöl. Hann var ekki valinn í úrvalsdeildarhóp Chelsea af Frank Lampard og númer hans var gefið nýja varnarmanninum Thiago Silva. Drinkwater lék einn leik í treyju Chelsea á nýliðinni leiktíð, með U23 ára liði félagsins í framrúðubikarnum. Hann fékk þó loks annað tækifæri til að sanna sig í janúar. Hann spilaði ellefu leiki fyrir tyrkneska félagið Kasimipasa í úrvalsdeildinni þar í landi. Í heildina hefur hefur Drinkwater frá árinu 2018 spilað færri leiki fyrir lánsfélögin þrjú en hann gerði á sínu eina ári í aðalliðshópi Chelsea og hefur Rússinn Roman Abramovich, eigandi félagsins, eflaust gert betri fjárfestingar. Miðjumaðurinn á forsíðu The Sun í apríl 2019. Drinkwater hafði fengið sér í glas og sest undir stýri með slæmum afleiðingum. Drinkwater fékk óvænt tækifæri til að spila með Chelsea á yfirstandandi undirbúningstímabili, þar sem hann byrjaði leik gegn Peterborough, 1077 dögum eftir síðasta leik sinn fyrir félagið. Í æfingahópnum er hann ásamt mönnum eins og Tiémoué Bakayoko, Ruben Loftus-Cheek og Ross Barkley, sem keppast um miðjumannssæti í leikmannahópi Thomasar Tuchel. Það skildi þó aldrei vera að Drinkwater og Kanté sameini krafta sína á ný á komandi tímabili. Það verður að þykja ólíklegt en þá er spurning hvort Drinkwater sé loks reiðubúinn að gefa eftir stóran launatékkann til að koma ferlinum aftur af stað.
Enski boltinn Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn „Búinn að vera tilfinningarússibani“ Íslenski boltinn Fury eldri blóðugur í aðdraganda sögulegs bardaga Sport „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Körfubolti Fleiri fréttir Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Lygileg toppbarátta í Danmörku Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Barcelona upp í annað sætið Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Sungu nafn Arnórs hástöfum Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ „Förum glaðir úr Lautinni“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Sjá meira