Akureyringurinn skoraði í stórsigri

María Catharina Ólafsdóttir Gros er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri.
María Catharina Ólafsdóttir Gros er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

María Catharina Ólafsdóttir Gros var á skotskónum í stórsigri Celtic gegn Edinburg City í 32-liða úrslitum skosku bikarkeppninnar í Tranent í kvöld.

Leiknum lauk með 12:0-sigri Celtic en María skoraði annað mark skoska liðsins á 26. mínútu.

Hún lék allan leikinn með Celtic sem er komið örugglega áfram í sextán-liða úrslit keppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert