Varaforseti UEFA um nýju úrvalsdeildina: Sjálfselska og græðgi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2020 11:30 Fernando Gomes, varaforseti UEFA með forsetanum Aleksander Ceferin. Getty/Bruno Barros
Knattspyrnusamband Evrópu er mjög ósátt með ráðabrugg stærstu fótboltafélaga Evrópu sem er sögð hafa unnið að því á bak við tjöldin að búa til nýja deild fyrir aðeins bestu og ríkustu liðin. Fráfarandi forseti Barcelona tilkynnti það á kveðjufundi sínum að Barcelona hafi samþykkt að spila í nýrri evrópskri úrvalsdeild. Áður höfðu borist fréttir af því að lið eins og Liverpool og Manchester United væru í viðræðum um að taka þátt í slíkri deild en ekkert hafði verið staðfest um slíkt. Yfirlýsing Josep Maria Bartomeu, fráfarandi forseta Barcelona, er hins vegar fyrsta staðfestingin um að slíkar viðræður séu komnar langt. "It violates all principles of sporting merit. It would be a self-proclaimed privileged club."Uefa's vice president has been very critical of a proposed European Super League. https://t.co/pHl6BqjDA8#bbcfootball pic.twitter.com/qRvVtiQDmO— BBC Sport (@BBCSport) October 28, 2020 Það þarf ekkert að koma á óvart að Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafi tekið illa í þessi plön enda er þessi nýja deild á vegum FIFA en Alþjóða knattspyrnusambandið ætlar greinilega einnig að nýta sér viðræðurnar til að fá í gegn stærri heimsmeistarakeppni félagsliða. Allt snýst þetta um peninga og það lítur út fyrir að það verði nóg af þeim í þessari nýju evrópsku úrvalsdeild. Stofnféð er sagt vera 4,6 milljarðar punda eða meira en 840 milljarðar íslenskra króna. Fernando Gomes, varaforseti UEFA, hefur nú tjáð sig um fréttirnar og þessa nýju evrópsku úrvalsdeild. „Þetta brýtur allar grunnreglur um gildi íþróttanna. Með þessu væru þetta sjálfskipuð forréttindafélög,“ sagði Fernando Gomes. „Þetta á skilið höfnun því á meðan heimurinn er að upplifa sínar mest krefjandi aðstæður í að minnsta kosti eina öld þá þurfum við alls ekki meira af sjálfselsku og græðgi,“ sagði Gomes. „Það er mín skoðun að allir stjórnarmenn ættu að hafna þessu á mjög afdráttarlausan hátt,“ sagði Fernando Gomes. Það er ljóst að ríku félögin yrðu bara ríkari með þessari nýju evrópsku úrvalsdeild og menn eins og Arsene Wenger eru líka sannfærðir um að slík deild yrði mikið áfall fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefur hingað til hefur notið góðs af miklum vinsældum á alþjóðavísu.
Fótbolti UEFA Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira