„Vanmetin kvennastétt“ skorar á heilbrigðisráðherra

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður samtakanna tók til máls.
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður samtakanna tók til máls. Ljósmynd/ FÍH

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skorar á yfirvöld að bæta kjör og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga, til að fjölga hjúkrunarfræðingum í heilbrigðiskerfinu en skortur á hjúkrunarfræðingum er áhyggjuefni. 

Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem samþykkt var einróma á aðalfundi sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. 

Leiðir til úrbóta að finna í skýrslum ráðuneytisins

 „Tryggja þarf nægan fjölda útskrifaðra hjúkrunarfræðinga og draga úr brottfalli þeirra úr starfi skömmu eftir útskrift. Það er mikilvægt að mönnun hjúkrunarfræðinga sé tryggð til lengri og skemmri tíma. Sporna þarf við því að hjúkrunarfræðingar sæki í önnur störf og fá þá sem hafa horfið til annarra starfa aftur til baka.“

Þá segir jafnframt að leiðirnar til þessara úrbóta sé að finna í skýrslum heilbrigðisráðuneytisins Mönnun hjúkrunarfræðinga (2020) og Tillögur til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga (2020) sem og eldri skýrslum.

Vanmetin kvennastétt

Skorað er á Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, að beita sér fyrir leiðréttingu á kynbundnum launamun á hjúkrunarfræðingum og öðrum stéttum með sambærilega menntun og ábyrgð. 

Þá vísar félagið til niðurstöðu gerðardóms 2020 þar sem fram hafi komið að vísbendingar væru um að hjúkrunarfræðingar séu vanmetin kvennastétt með tilliti til launa og ábyrgðar í starfi. 

Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar segir að farið verði í aðgerðir til að draga úr kynbundnum launamun og jafnréttismál verði alltaf í forgrunni við ákvarðanatöku. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fer fram á að unnið verði markvisst að því að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði og kerfisbundnu vanmati á störfum þar sem konureru í meirihluta.“

Ályktunin var samþykkt einróma á aðalfundi FÍH.
Ályktunin var samþykkt einróma á aðalfundi FÍH. Ljósmynd/ FÍH

Mönnunarviðmið til að tryggja öryggi

Einnig er skorað á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir lagasetningu um mönnunarviðmið í heilbrigðiskerfinu, sambærileg þeim sem séu í gildi í helstu samanburðarlöndum Íslands. 

Núverandi mönnun er farin að ógna öryggi skjólstæðinga og starfsfólks.“

Loks skorar félagið á heilbrigðisráðherra og Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, að leggja fram frumvarp til lagabreytingar í tengslum við tilkynningar, rannsókn og málsmeðferð alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu. Framganga yfirvalda kalli á breyttan lagaramma. 

Tryggja greiðsluþátttöku SÍ

Félagið beinir því svo að heilbrigðisráðherra að tryggja greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna heilbrigðisþjónustu sem veitt er af hjúkrunarfræðingum á sama hátt og aðrar heilbrigðisstéttir. 

„Nauðsynlegt er að auka kaup hins opinbera á sjálfstæðri þjónustu hjúkrunarfræðinga til að tryggja bætt aðgengi notenda heilbrigðisþjónustunnar og auka skilvirkni í heilbrigðiskerfinu. Slíkt stuðlar að aukinni nýsköpun og hagkvæmni í heilbrigðiskerfinu ásamt nýjum þjónustuleiðum í samræmi við þarfir notenda hennar,“ segir í greinargerð ályktunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert