Partýsprengja um helgina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. júní 2021 10:15 Skál fyrir þér, We are the champions og Djamm í kvöld eru lög sem munu eflaust hljóma í einhverjum útskriftarveislum um helgina á milli þess sem korkurinn flýgur úr flöskunum. Vísir/vilhelm Telja má líklegt að laugardagurinn 19. júní verði mikill veisludagur. Brautskráning kandídata við Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll og kandídatar við Háskólann í Reykjavík fá sínar viðurkenningar við athöfn í Hörpu.
Því til viðbótar eru afmæli, brúðkaup, steggjanir og gæsanir skipulagðar um allt land. Það má því reikna með því að vínið flæði og timburmenn á sunnudeginum verði mögulega sögulegir, hvað fjölda timburmanna varðar í það minnsta. Við bætist auðvitað uppsöfnuð partýþörf eftir kórónuveiruárið 2020. Árið þar sem fresta þurfti stórafmælum, brúðkaupum og veislum af öllum toga. Nú þegar slakað hefur verið verulega á samkomutakmörkunum og góður gangur er í bólusetningum er víða komið að því að blása til veislu. Finna fyrir veislunum í Vínbúðinni Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir starfsfólkið finna vel fyrir veislustandi í sumar. Reikna má með að margir leggi leið sína í vínbúðirnar í dag að versla inn fyrir morgundaginn. Hvítvínið verður örugglega flæðandi víða um helgina.Vísir/Vilhelm „Við sjáum það sem gerist í dag ekki fyrr en á morgun,“ segir Sigrún Ósk. Starfsfólkið hafi þó fundið fyrir auknu álagi. Koma verði í ljós hvort fólk sé búið að gera ráðstafanir fyrir veislur morgundagsins eða örtröð verði í dag. En veislutímabilið sé svo sannarlega hafið. „Þau hafa fundið fyrir því í veisluþjónustunni að það eru veislur fram undan. Það er uppsöfnuð veisluþörf,“ segir Sigrún Ósk. Háskólaútskriftunum fylgi auðvitað fjöldi veisla. Allt uppbókað um helgina Þegar skipuleggja á flotta veislu eru margir sem stækka húsnæðið sitt með því að henda upp tjaldi í garðinn. Einhverjir fylgdust með nágrönnum sínum nýta frídaginn í gær til að setja upp tjald í garðinum. Seglagerðin er á meðal þeirra sem leigja út tjöld. Björgvin Barðdal, seglasaumari hjá Seglagerðinni, finnur sannarlega fyrir veisluhöldum helgarinnar. Fjölmargir nemendur við Háskóla Íslands útskrifast á morgun.Vísir/vilhelm „Þessi helgi er öll uppbókuð og sú næsta líka,“ segir Björgvin. Tjöldin eru af öllum stærðum og gerðum, svo eru bekkir, borð og fleira sem fólk næli sér í fyrir veislur. Leiga á slíkum búnaði í kórónuveirufaraldrinum hafi verið engin, eðli máls samkvæmt, en nú sé allt á uppleið. „Flestum er boðið í fjórar til fimm veislur um helgina, með kostum og göllum,“ segir Björgvin.
Háskólar Áfengi og tóbak Næturlíf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira