Innlent

Út­gerðir kosta mælingar í von um aukinn loðnu­kvóta

Atli Ísleifsson skrifar
Samkvæmt nýjustu ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar sem kynnt var í byrjun októbermánaðar verður leyfilegt að veiða allt 218 þúsund tonn af loðnu á komandi vertíð.
Samkvæmt nýjustu ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar sem kynnt var í byrjun októbermánaðar verður leyfilegt að veiða allt 218 þúsund tonn af loðnu á komandi vertíð. Vísir/KMU

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, héldu til loðnumælinga eftir hádegi í gær og er gert ráð fyrir að túrinn taki allt að tíu daga.

Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að veiðiskip muni jafnframt taka þátt í verkefninu og aðstoða við að afmarka dreifingu loðnustofnsins sem flýti fyrir mælingunum rannsóknaskipanna.

Samkvæmt nýjustu ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar sem kynnt var í byrjun októbermánaðar verður leyfilegt að veiða allt 218 þúsund tonn af loðnu á komandi vertíð. Þar af falla um 139 þúsund tonn í skaut íslenskra útgerða.

„Þessar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar og útgerða eru að frumkvæði og kostaðar af útgerðum uppsjávarveiðiskipa.

Markmið leiðangra í desember er tvíþætt. Í fyrsta lagi að fá mynd af útbreiðslu veiðistofnsins sem nýtist bæði við skipulagningu á mælingum Hafrannsóknastofnunar á stærð stofnsins í janúar næstkomandi svo og skipulagningu flotans á veiðum næstu vikurnar. Í öðru lagi er vonast eftir því að marktæk mæling á stærð veiðistofnsins náist sem mögulega leiddi til endurskoðunar á veiðiráðgjöf fyrir komandi loðnuvertíð.

Líkt og komið hefur fram var niðurstaða mælinga á stærð veiðistofns loðnu, sem fram fór í september síðastliðinn töluvert lægri en væntingar voru um, byggðar á niðurstöðum mælinga á ungloðnu haustið 2021. Með öðrum orðum, mælingarnar í fyrra bentu til þess að veiðistofninn á vertíðinni 2022/23 yrði mun stærri en haustmælingin í ár bendir til og ráðgjöf um aflamark byggir á. Þetta misræmi í niðurstöðum milli ára er ástæða þess að reynt verður að ná mælingu á stærð stofnsins á þessum tímapunkti,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Komandi loðnu­ver­tíð gæti skilað allt að 30 milljörðum í þjóðarbúið

Þrátt fyrir að loðnukvóti komandi vertíðar stefni í að verða um fjórðungur af síðustu vertíð í lönduðum tonnum mælt, dregst vænt útflutningsverðmæti loðnuafurða aðeins saman um helming. Þetta kom fram í máli Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar í kynningu á uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×