Iceland Airwaves verður að stafrænni tónlistarhátíð um heim allan Stefán Árni Pálsson skrifar 15. október 2020 10:26 Hátíðin verður rafræn í ár en búið var að fresta henni alfarið til næsta árs. vísir/andri marínó
Iceland Airwaves mun standa fyrir stafrænu tónlistarhátíðarinnar Live from Reykjavík dagana 13. og 14. nóvember, í samstarfi við Íslandsstofu, RÚV, Reykjavíkurborg, Icelandair, Einstök og Landsbankann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live. Á hátíðinni kemur fram blanda af íslensku tónlistarfólki sem vakið hefur athygli utan landssteinanna, ásamt yngri vonarstjörnum íslenskrar tónlistar. Tónleikar hátíðarinnar verða aðgengilegir á miðlum RÚV, en einnig verður seldur aðgangur að streymi frá hátíðinni um allan heim í gegnum vefinn Dice.fm. Samhliða hátíðinni mun ÚTÓN standa fyrir stafrænni ráðstefnu fyrir áhrifafólk úr tónlistargeiranum til að kynna íslenska tónlist og listamenn. Á hátíðinni koma fram alls 16 atriði: Ásgeir, Auður, Bríet, Cell7, Daði Freyr, Emilíana Torrini & Friends, GDRN, Hatari, Hjaltalín, Júníus Meyvant, Kælan Mikla, Mammút, Mugison, Of Monsters And Men, Ólafur Arnalds, Vök. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á svo viðamikla tónlistardagskrá frá Íslandi í gegnum netið um allan heim. Tilgangurinn er að styðja við sköpun og starf íslenskra tónlistarmanna, búa til reynslu og þekkingu í streymi sem nýtast mun íslenska tónlistargeiranum til framtíðar og efla markaðs- og kynningarstarf íslenskrar tónlistar á erlendum vettvangi. „Nú er allt okkar fremsta tónlistarfólk á landinu á sama tíma en ekki á tónleikaferðalagi um heiminn. Það er algjört einsdæmi að geta stillt upp svo öflugri dagskrá á Íslandi og það er tækifæri sem við vildum ekki láta okkur renna úr greipum,“ segir Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves. „Þetta er jafnframt gott tækifæri til þess að styðja við tónlistarfólkið hér heima. Hér er er verið að skapa fjölmörg störf í geira sem hefur verið svo til lamaður síðan í mars og 100% af kostnaði og tekjum renna inn í hann á einn eða annan hátt. Við trúum því að þessi dagskrá og þetta framtak muni vekja heimsathygli og búa til ómetanlega þekkingu og reynslu innan geirans,“ segir Ísleifur. Tónleikar hátíðarinnar munu fara fram á tónleikastöðum sem hafa verið áberandi í dagskrá Iceland Airwaves frá upphafi, svo sem Listasafni Reykjavíkur, Gamla bíói, og Iðnó.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Airwaves Tónlist Mest lesið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Hera komst ekki áfram Lífið „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Lífið Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Lífið Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Fleiri fréttir Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Sjá meira