Sport

Dagskráin í dag: Úrslitakeppnir í handbolta og körfubolta ásamt nóg af golfi

Atli Arason skrifar
Pétur Rúnar Birgisson og félagar í Tindastóll unnu síðasta leik gegn Val fyrir norðan. Tekst þeim að endurtaka leikinn í kvöld?
Pétur Rúnar Birgisson og félagar í Tindastóll unnu síðasta leik gegn Val fyrir norðan. Tekst þeim að endurtaka leikinn í kvöld? Vísir/bára

Það ræðst í kvöld hvort það verður Tindastóll eða Valur sem tekur risastökk í átt að Íslandsmeistaratitill karla í körfubolta í leik þrjú á Hlíðarenda. ÍBV getur farið áfram í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitill kvenna í handbolta á meðan Keflavík, Fram og Leiknir gætu öll sótt sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta. Allt í beinni á Stöð 2 Sport.

Stöð 2 Sport

Einvígi Vals og KA/Þór í undanúrslitum Olís-deild kvenna í handbolta heldur áfram. Staðan í einvíginu er 1-1 en útsending af leik þrjú á Hlíðarenda hefst klukkan 17.40.

Leikur þrjú í úrslitaeinvígi Subway-deild karla í körfubolta tekur svo við strax í kjölfarið, einnig frá Hlíðarenda. Upphitun Subway körfuboltakvölds fyrir leikinn hefst klukkan 20.00 áður en leikur Vals og Tindastóls hefst klukkan 20.25.

Subway Körfuboltakvöld gerir svo leikinn upp frá 22.10.

Stöð 2 Sport 2

Viðureign Fram og ÍBV í undanúrslitum Olís-deild kvenna fer af stað klukkan 19.40. Fram leiðir einvígið 2-0.

Seinni bylgjan gerir upp báða leikina í undanúrslitum klukkan 21.10.

Stöð 2 Sport 4

Það er svo mikið um að vera í Golfinu að dagskráin kemst ekki öll fyrir Stöð 2 Golf. Founders Cup á LPGA mótaröðinni er á dagskrá á Stöð 2 Sport 4 klukkan 14.30.

Leikur Keflavíkur og Leiknis í Bestu deild karla í fótbolta er í beinni útsendingu klukkan 19.00.

Stúkan gerir svo upp alla leiki dagsins í Bestu deild karla klukkan 21.15.

Stöð 2 Golf

Aramco Team Series mótið í Bangkok sem er hluti af LET mótaröðinni hefst klukkan 06.00

Soudal Open mótið á DP world tour tekur við klukkan 11.00.

Klukkan 20.00 er komið af AT&T Byron Nelson mótinu en það er hluti af PGA mótaröðinni.

Stöð 2 eSport

Geimveran er á sínum stað klukkan 21.00.

Stöð 2 BD

Leikur Fram og Víkings er í beinni útsendingu á vefsvæði Stöð 2 klukkan 19.05.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×