Vonbrigði að Albert sé ekki tilbúinn að koma inn í landsliðið

Albert Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu.
Albert Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Albert Guðmundsson er ekki í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fyrir leiki gegn Bosníu og Hersegóvínu og Liechtenstein í undankeppni EM 2024 síðar í mánuðinum.

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari kvaðst hafa rætt við Albert um mögulega endurkomu í hópinn.

„Ég hringdi í Albert og við ræddum saman. Niðurstaðan er sú að ég vel hann ekki að þessu sinni. Það eru vonbrigði að hann sé ekki tilbúinn til að koma inn í landsliðið á forsendum liðsins.

Þessar forsendur eru þær sömu fyrir alla leikmenn, hvort sem þú ert 19 ára eða 34 ára. Það er fullt af leikmönnum með mikla hæfileika í þessum landsliðshópi.

Akkúrat núna er marsverkefnið okkar fram undan, ný undankeppni að byrja, og þá er mikilvægt að vera með fókus á það verkefni og þann hóp sem við erum með. Það ætlum við að gera, ég og þjálfarateymið, starfsliðið og leikmennirnir, allir saman sem eitt lið,“ sagði Arnar Þór í samtali á heimasíðu KSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert