Fær ekki líftryggingu eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna þunglyndis Árni Sæberg skrifar 21. júní 2022 16:46 TM og VÍS neituðu Stefáni um líftryggingu einfaldlega vegna þess að hann er þunglyndur. Aðsend/Vísir Stefán Árnason hefur fengið synjun á umsókn um líftryggingu frá tveimur vátryggingafélögum. Þau hafa synjað umsóknum hans af þeim ástæðum einum að hann sé þunglyndur og hafi leitað sér hjálpar vegna þess. „
TM líftryggingar hf. hefur haft umsókn þína um líf- og sjúkdómatryggingu til skoðunar. Það er niðurstaða áhættumats félagsins að það verður því miður að synja henni vegna nýlegra geðrænna vandamála,“ „Vegna þunglyndis er VÍS því miður ekki reiðubúið að samþykkja tryggingarnar að svo stöddu, og hafnar því tryggingunum á grundvelli 82.gr. vátryggingalaga nr. 30/2004,“ Þetta eru svörin sem Stefáni hafa borist eftir að hafa sótt um líftryggingar hjá TM og VÍS, en hann vakti athygli á málinu í innsendri skoðanagrein hér á Vísi. Í samtali við Vísi segist Stefán líftryggður en að hann vilji nú bæta við trygginguna til að endurspegla betur núverandi stöðu hans hvað varðar tekjur hans og skuldbindingar. Hann segist hafa sett sig í samband við tryggingafélögin og reynt að bjóðast til að greiða hærri iðgjöld fyrir líftryggingu eða samþykkja að settur verði fyrirvari í vátryggingarsamning svo hann gildi ekki um atvik tengdum andlegum veikindum. „Ég hef bara ekki fengið frekari útlistun á þessari neitun,“ segir hann. Enn furðulegra að Sjúkratryggingar taki ekki þátt í sálfræðikostnaði „En svo er stærra mál í þessu að það sé ekki búið að setja þennan málaflokk inn í sjúkratryggingarnar,“ segir Stefán í samtali við Vísi. Árið 2020 var frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, á þá leið að sjúkratryggingar taki til nauðsynlegrar sálfræðimeðferðar, samþykkt og tóku nýju lögin gildi árið 2021. Enn bólar ekkert á þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði fólks vegna sálfræðiþjónustu. „Það var skrifað undir eitthvað árið 2021 en við erum komin ansi langt frá þeim tíma,“ segir Stefán. „Nú þurfum við sem þjóð, ráðamenn, mæður, feður, systur, bræður, frænkur, frændur, vinir og nágrannar að snúa bökum saman, taka utan um hvert annað og tryggja aðgengi að öflugri geðheilbrigðisþjónustu þar sem kostnaður við sálfræðiþjónustu og biðtími er ekki steinn í vegi í átt að bata,“ segir Stefán í greininni. Þá segir hann einnig að einkarekin tryggingafélög mættu endurskoða sína gróðastarfsemi og sýna af sér smá vott af mannleika og taka þátt í verkefninu með okkur.
Tryggingar Geðheilbrigði Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Sjá meira