Kristján Þór lang óvinsælasti ráðherrann Sunna Sæmundsdóttir skrifar 5. mars 2021 19:00 Könnunin byggir á tveimur mælingum sem voru gerðar í lok janúar og byrjun febrúar. vísir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er lang óvinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar samkvæmt nýrri könnun. Einungis níu prósent segjast ánægð með störf hans.
Könnunin sem Maskína gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, inniheldur tvær mælingar síðan í lok janúar og byrjun febrúar. Svarendur eru 2.029. Samkvæmt henni nýtur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra yfirburða vinsælda í ráðherrahópnum og fimmtíu og átta prósent svarenda eru ánægðir með hennar störf. Næst koma Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, en tæpur helmingur er ánægður með þau. Heldur fleiri eru óánægðir með Svandísi, eða fjórðungur, en nítján prósent segjast óánægðir með Ásmund. Aðrir ráðherrar Framsóknarflokksins; menntamálaráðherra og samgönguráðherra eru næst í vinsældaröðinni. Fjörtíu og þrjú prósent segjast ánægð með Lilju Dögg Alfreðsdóttur en þrjátíu og átta prósent með Sigurð Inga Jóhannsson. Þá er ríflega þriðjungur ánægður með dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir virðist þó heldur umdeildari en Guðlaugur Þór Þórðarson, þar sem ríflega þriðjungur er jafnframt óánægður með hennar störf. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar.Vísir/Vilhelm Fleiri segjast óánægðir en ánægðir með störf Bjarna Benedikssonar fjármálaráðherra. Þriðjungur segist ánægður með hans störf en 43 prósent eru óánægðir. Sama gildir um Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra, og eru þar fleiri óánægðir en ánægðir, eða 28 prósent ánægðir og 37 prósent óánægðir. Þrjátíu prósent sveranda segjast ánægðir með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála- iðnaðar og nýsköpunarráðherra. Aðeins færri, eða 28 prósent segjast óánægðir. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, rekur lestina. Einungis níu prósent, eða tæplega einn af hverjum tíu er ánægður með hann og mun fleiri eru óánægðir, eða 64 prósent. Könnunin inniheldur tvær mælingar, sú fyrsta var framkvæmd 21. janúar til 1. febrúar 2021 og sú seinni 5. til 12. febrúar 2021. Svarendur voru 2.029.
Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Skoðanakannanir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Fleiri fréttir Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju holt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Sjá meira