Innlent

Ísland langefst á lista Riot Games

Samúel Karl Ólason skrifar
Kynningarmynd um mótin sem haldin verða hér á landi í maí.
Kynningarmynd um mótin sem haldin verða hér á landi í maí.

Forsvarsmenn fyrirtækisins Riot Games lögðu áherslu á að vel væri haldið á sóttvörnum í landinu þar sem eitt stærsta rafíþróttamót yrði hýst. Starfsmenn Riot litu einnig til netaðstöðu enda væri það gífurlega mikilvægt fyrir mót af þessu tagi.

Mótið verður haldið í Laugardalshöll í maí.

Ráðgjafar Riot skrifuðu upp lista af borgum þar sem skilyrðum fyrirtækisins væri náð. Hægt og rólega síuðu þeir borgir úr þessum lista og að endingu voru nokkrar eftir.

Þar á meðal var Reykjavík.

Í samtali við blaðamann Washington Post segir Nick Troop, sem stýrir rafíþróttaviðburðum í leiknum League of Legends hjá Riot Games, að Ísland hafi verið öðrum ríkjum framar. Sérstaklega þegar komi að vörnum gegn Covid-19 en sömuleiðis varðandi internetið og aðstöðu.

„Það sem við viljum veita keppendum okkar og áhorfendum er eðal samkeppni og hún næst best þar sem við getum náð saman liðunum og leyft þeim að spila í LAN umhverfi þar sem engar kerfistruflanir koma niður á keppni þeirra,“ sagði Nick Troop.

Íslandsstofa hafði milligöngu um að koma Riot Games í samband við Reykjavíkurborg og aðra þjónustuaðila sem koma að undirbúning mótsins.

Riot og Íslendingar hafa unnið að því að stilla saman strengi sína frá því í janúar og Troop segir viðtökurnar meðal Íslendinga hafa verið verulega góðar.

League of Legends er einn vinsælasti tölvuleikur heims og áhorf á beinar útsendingar frá keppnum atvinnumanna njóta gríðarlegra vinsælda. Alls horfðu um 23 milljónir manns á beina útsendingu frá úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í leiknum sem fram fór í Shanghaí í desember síðastliðnum, og um hundrað milljón einstakir áhorfendur fylgdust með útsendingum frá heimsmeistaramótinu 2019.

Meira er í húfi varðandi leikinn Valorant, samkvæmt frétt Washington Post. Leikurinn var gefinn út um það leiti sem heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar var að hefjast og verður þetta í fyrsta sinn sem lið frá mismunandi svæðum heimsins koma saman og keppa í leiknum.

Keppendur munu þurfa í sex daga einangrun við komuna til Íslands og þar að auki þurfa þeir að hafa farið í PCR próf innan við þremur sólarhringum fyrir komuna til landsins.

Riot segir viðbúnaðinn varðandi sóttvarnir vera mjög svipaðan þeim sem var í Shanghaí þegar fyrirtækið hélt mót þar í september.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×