Enski boltinn

Sextán ára „demantur“ mögulega frumsýndur hjá Liverpool í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kaide Gordon á ferðinni með unglingaliði Liverpool í leik á móti AC Milan í UEFA Youth League.
Kaide Gordon á ferðinni með unglingaliði Liverpool í leik á móti AC Milan í UEFA Youth League. Getty/Nick Taylor

Stuðningsmenn Liverpool gætu fengið að sjá nýjan spennandi leikmann spila í enska deildabikarnum í kvöld þegar liðið mætir Norwich í beinni á Stöð 2 Sport 2.

Pepijn Lijnders, aðstoðarstjóri Liverpool, talaði sérstaklega um hinn sextán ára gamla Kaide Gordon á blaðamannafundi fyrir leikinn.

Lijnders var svo hrifinn af strák þegar hann sá hann fyrst í haust að hann hringdi sérstaklega í knattspyrnustjórann Jürgen Klopp til að segja honum frá leikmanninum.

Liverpool sótti Kaide Gordon til Derby í febrúar og hann heillaði aðstoðarmann Klopp í sumar.

„Áður en undirbúningstímabilið hefst þá pössum við upp á það að efnilegustu leikmenn félagsins byrji einni viku áður en við. Þeir byrja að æfa með 23 ára liðinu og ég fór á æfingu með því liði,“ sagði Pepijn Lijnders. Lijnders segir að strákurinn sé einn af demöntunum sem eru að koma upp hjá félaginu og þessi strákur er fæddur árið 2004.

„Ég sá þá einn leikmann sem var eins og raketta í hvert skipti sem hann snerti boltann. Hann fór framhjá leikmönnum eins og þær væru ekki þar. Ég hringdi strax í Jürgen og sagði: Vá, við erum komnir með nýjan leikmann,“ sagði Lijnders.

„Við tökum alla þessa ungu leikmenn með á undirbúningstímabilið og þú veist að þú ert með góðan leikmann í höndunum þeir eldri og reyndari leikmenn liðsins fara að passa upp á viðkomandi leikmann. Þegar þú sérð James Milner tala við Kaide, þegar Trent [Alexander-Arnold] er búinn að taka að sér hlutverk lærimeistara hans og þegar þú sérð alla aðalmennina bjóða stráknum á sitt borð, þá veistu að menn ætla sér að hjálpa honum að aðalagast hlutunum,“ sagði Lijnders.

„Hann er dæmigerður vængmaður en það eru líka mörk í honum og hann hefur náttúrulegu hæfileika að vera á réttum stað í teignum þegar fyrirgjafirnar koma. Það eru ekki allir sem hafa það líka. Hann er dæmigerður Liverpool vængmaður að mínu mati því hann er markaskorari og hann hefur hraða. Við erum virkilega hrifnir af honum og ég er mjög ánægður að hann sé með okkur,“ sagði Lijnders.

Kaide Gordon er í átján manna leikmannahópi Liverpool á móti Norwich í kvöld þegar liðin mætast í 32 liða úrslitum enska deildabikarsins. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×