Jafntefli í fyrsta leik Guðrúnar

Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn.
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svíþjóðarmeistarar Rosengård gerðu jafntefli, 1:1, við Piteå í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. 

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í vörn Rosengård og því hefur lítið breyst frá síðasta tímabili. Svíinn Loreta Kullashi kom Rosengård yfir á 50. mínútu en landi hennar Hanna Andersson jafnaði metin fyrir Piteå á 85. mínútu. 

Þetta var fyrsti leikur tímabilsins í sænsku úrvalsdeildinni og því sitja liðin saman á toppnum með sitthvort stigið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert