Innlent

Aðgerðir til stuðnings sveitarfélaga kynntar á næstu dögum

Heimir Már Pétursson skrifar

Sveitarstjórnarráðherra segir að aðgerðir til að létta undir með sveitarfélögunum vegna kórónufaraldursins verði kynntar á næstu dögum. Aðgerðirnar muni styðja við lögbundin verkefni þeirra en þau þurfi einnig að geta sinnt öðrum verkefnum.

Staða margra sveitarfélaga hefur versnað mikið í kórónufaraldrinum eins og á Akureyri þar sem stefnir í allt að 3,5 milljarða halla á samstæðu bæjarins á þessu ári. Framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga munu til að mynda lækka um hundruð milljón til bæjarins en framlög í sjóðinn eru hluti af lækkandi útsvarstekjum sveitarfélaganna og ásamt hlutfallslegu mótframlagi frá ríkinu.

Sigurður Ingi Jóhannsson sveitarstjórnarráðherra reiknar með að kynna aðgerðir til aðstoðar sveitarfélögunum innan fárra daga.Stöð 2/Sigurjón

Sigurður Ingi Jóhannsson sveitarstjórnarráðherra segir stöðu sveitarfélaganna þó mismunandi og sum þeirra hafi til dæmis ekki fullnýtt útsvarsprósentu sína. Nú sé heilstæðri skoðun á þeim lokið.

„Sum eru þannig stödd að þau hafa litlar bjargir. Aðrir geta eins og ríkissjóður komist í gegnum þetta tímabundna ástand. En við þekkjum að það eru sérstaklega ákveðnir málaflokkar viðkvæmra hópa. Sem við munum verða tilbúin að bakka sveitarfélögin upp til að þau geti staðið undir grunnþjónustu,“ segir Sigurður Ingi.

En bæjarstjórn Akureyrar segir stöðuna til að mynda það þrönga að bærinn geti nánast ekki sinnt neinu öðru en lögbundnum verkefnum. Ein aðgerðanna yrði að bæta í jöfnunarsjóðinn að sögn ráðherra til að sveitarfélögin geti staðið undir lögbundinni þjónustu við fatlaða.

Það getur ekki verið góð staða fyrir sveitarfélög að geta ekki sinnt neinu nema lögbundnum verkefnum. Þarf ekki að styðja þau til að þau geti sinnt einhverju öðru en bara þeim?

„Jú, við erum öll held ég sammála um að við erum í erfiðri stöðu. Allir þeir fjármunir sem ríkisvaldið hefur yfir að ráða tökum við að láni.“

Þannig að skilaboðin eru kannski að hluta til þau að sveitarfélög sem geti tekið lán, eru það vel stödd, auki lántöku sína?

„Já alveg klárlega. Einmitt í því skyni að reyna að halda uppi þjónustu og lágmarksframkvæmdum og helst geta bætt í ef þau tækifæri eru uppi. Því þannig ætlum við hjá ríkinu að fara í gegnum þetta og það er auðvitað mikilvægt að sveitarfélögin geti það líka,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson.


Tengdar fréttir

Mikið tekjufall hjá Akureyrarbæ á þessu ári

Það stefnir í allt að 3,5 milljarða halla á samstæðu Akureyrarbæjar og allt að 2,5 milljarða á A-hluta bæjarsjóðs á þessu ári. Bærinn getur illa sinnt öðrum en lögbundnum verkefnum.

Skoska leiðin tekur flugið

Í vikunni var Loftbrúin kynnt á sama tíma og hún tók gildi en fram til þessa hefur hún gjarnan verið kennd við skosku leiðina Loftbrúin veitir afsláttarkjör á flugi til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×