Andreas Christensen er genginn í raðir Barcelona á frjálsri sölu. Katalóníufélagið staðfestir þetta.
Danski miðvörðurinn skrifar undir samning til ársins 2026.
Christensen var síðast á mála hjá Chelsea. Samningur hans þar rann út um mánaðarmótin.
Daninn kom ungur að árum til Chelsea frá Bröndby í heimalandinu. Hann kom upp í aðallið Chelsea árið 2015 og steig sín fyrstu skref í meistaraflokksfótbolta þar.
Christensen er annar leikmaðurinn sem Barcelona fær til liðs við sig í dag. Franck Kessie gekk einnig í raðir félagsins frá AC Milan.
Welcome to Barcelona, Andreas Christensen! pic.twitter.com/mHy0sO9FvK
— FC Barcelona (@FCBarcelona) July 4, 2022