Hefur safnað 9,5 milljörðum króna í sjóð sinn Samúel Karl Ólason skrifar 23. júlí 2021 08:51 Trump á fjöldafundi með stuðningsmönnum sínum í Flórída í byrjun mánaðarins. EPA/Rod Millington Save America, pólitísk aðgerðanefnd (PAC) Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, safnaði um 75 milljónum dala á fyrri hluta þessu árs. Það samsvarar tæplega níu og hálfum milljarði króna, lauslega reiknað.
Það var að mestu gert á grundvelli ásakana forsetans fyrrverandi um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra, sem Joe Biden vann. Þessi sjóður Trumps hefur ekki varið peningum í viðleitni bandamanna forsetans við að telja atkvæði í Arizona og sambærilegar aðgerðir í öðrum ríkjum. Það er samkvæmt heimildarmönnum Washington Post meðal Trump-liða, sem segja Trump þó fylgjast náið með vendingum hjá bandamönnum sínum. Þrátt fyrir það hefur hann ekki haft áhuga á að styðja þessar aðgerðir og reiðir sig á að aðrir stuðningsmenn hans geri það. Save America sjóðurinn er fáum takmörkunum háður varðandi það hvert peningarnir mega fara. Samkvæmt Washington Post hafa þeir peningar sem farið hafa úr sjóðnum farið í ferðalög Trumps, lögfræðikostnað, launakostnað og annað. Annars hefur lítið farið úr sjóðnum og mun Trump því geta beitt fúlgum fjár til að styðja þá Repúblikana sem hann styður í þingkosningunum á næsta ári og safnað i púkk fyrir nýtt forsetaframboð 2024. Strax eftir kosningarnar söfnuðust 31,5 milljón dala í aðgerðanefndina. Þá átti meðal annars að nota sjóðinn til að hjálpa Repúblikanaflokknum við að sigra aukakosningar til öldungadeildarinnar í Georgíu, en mun ekki hafa gerst. Forsvarsmenn aðgerðanefndarinnar munu þurfa að skila skýrslu um fjárútlát þeirra í lok mánaðarins. Frá því hann yfirgaf Hvíta húsið, og fyrir það einnig, hefur Trump verið hávær um að svindlað hafi verið á honum. Þó hafa engar sannanir um það litið dagsins ljós. Hann hefur beitt embættismenn þrýstingi og framboð hans hefur notað þessar ásakanir til fjáröflunar, á grundvelli þess að Trump vinni hörðum höndum að því að verja atkvæði þeirra og heilindi kosninga í Bandaríkjunum. Til marks um það mun Trump halda fjöldafund í Phoenix í Arizona um helgina sem ber heitið „Verjum kosningarnar okkar“. Washington Post hefur eftir heimildarmönnum sínum að Trump hafi sagt ráðgjöfum sínum að hann vilji eiga sjóði fyrir mögulegt forsetaframboð 2024. Hann segist stefna að því að bjóða sig fram aftur en einhverjir ráðgjafar hans draga í efa að svo fari.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Tengdar fréttir Pelosi neitar stuðningsmönnum Trumps um sæti í rannsóknarnefnd Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hafnaði í gær að hleypa tveimur þingmönnum Repúblikanaflokksins inn í þingnefnd sem rannsaka á árásina á þinghúsið þann 6. janúar. 22. júlí 2021 08:52 Twitter lokar á þingkonu fyrir falsfréttir um Covid Twitter hefur lokað tímabundið á bandarísku þingkonuna Marjorie Taylor Green fyrir að hafa tíst „villandi“ upplýsingum um kórónuveiruna. Aðeins verður hægt að skoða Twitter-aðgang hennar í 12 klukkustundir og hvorki verður hægt að svara eða endurtísta tístunum hennar. 20. júlí 2021 07:57 Sá fyrsti til að vera dæmdur fyrir árásina á þinghúsið Karlmaður frá Flórídafylki var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa rutt sér leið inn í sal öldungadeildar Bandaríkjaþings þegar staðfesta átti niðurstöður forsetakosninganna í byrjun þessa árs. Hann er sá fyrsti til að hljóta dóm fyrir glæp í tengslum við árásina á þinghúsið. 19. júlí 2021 23:32 Trump fer í mál við samfélagsmiðlarisa Fyrrverandi Bandaríkjaforsetinn Donald Trump hefur höfðað mál gegn samfélagsmiðlarisunum Facebook, Twitter og YouTube. Hann vill meina að brotið hafi verið á sér þegar hann var bannaður á miðlunum fyrr á árinu. 7. júlí 2021 20:01 Fjármálastjóri Trumps lýsti yfir sakleysi sínu Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir dómi í New York í dag. Það gerði hann í kjölfar þess að hann var ákærður fyrir skattsvik vegna tveggja ára langrar rannsóknar saksóknara á fyrirtæki forsetans fyrrverandi. 1. júlí 2021 19:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Fleiri fréttir Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum Sjá meira
Pelosi neitar stuðningsmönnum Trumps um sæti í rannsóknarnefnd Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hafnaði í gær að hleypa tveimur þingmönnum Repúblikanaflokksins inn í þingnefnd sem rannsaka á árásina á þinghúsið þann 6. janúar. 22. júlí 2021 08:52
Twitter lokar á þingkonu fyrir falsfréttir um Covid Twitter hefur lokað tímabundið á bandarísku þingkonuna Marjorie Taylor Green fyrir að hafa tíst „villandi“ upplýsingum um kórónuveiruna. Aðeins verður hægt að skoða Twitter-aðgang hennar í 12 klukkustundir og hvorki verður hægt að svara eða endurtísta tístunum hennar. 20. júlí 2021 07:57
Sá fyrsti til að vera dæmdur fyrir árásina á þinghúsið Karlmaður frá Flórídafylki var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa rutt sér leið inn í sal öldungadeildar Bandaríkjaþings þegar staðfesta átti niðurstöður forsetakosninganna í byrjun þessa árs. Hann er sá fyrsti til að hljóta dóm fyrir glæp í tengslum við árásina á þinghúsið. 19. júlí 2021 23:32
Trump fer í mál við samfélagsmiðlarisa Fyrrverandi Bandaríkjaforsetinn Donald Trump hefur höfðað mál gegn samfélagsmiðlarisunum Facebook, Twitter og YouTube. Hann vill meina að brotið hafi verið á sér þegar hann var bannaður á miðlunum fyrr á árinu. 7. júlí 2021 20:01
Fjármálastjóri Trumps lýsti yfir sakleysi sínu Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir dómi í New York í dag. Það gerði hann í kjölfar þess að hann var ákærður fyrir skattsvik vegna tveggja ára langrar rannsóknar saksóknara á fyrirtæki forsetans fyrrverandi. 1. júlí 2021 19:01