Fyrsta loðnan komin til hafnar í Neskaupstað

Bjarni Ólafsson kom til hafnar fyrir hádegi í dag hlaðinn …
Bjarni Ólafsson kom til hafnar fyrir hádegi í dag hlaðinn 1.600 tonnum af loðnu. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar með fyrsta loðnufarm vertíðarinnar fyrir hádegi í dag, samkvæmt færslu sem birt hefur verið á vef Síldarvinnslunnar, sem gerir skipið úr. Þar segir að aflinn hafi verið um 1.600 tonn og fékkst hann í átta holum um 45 mílur norður af Melrakkasléttu.

„Nánast öll veiðin á sér stað yfir daginn. Menn draga yfir nóttina en það kemur afar lítið út úr því. Stærsta holið okkar var rúmlega 400 tonn. Loðnan er fín, en stærð hennar er svolítið misjöfn eftir holum – frá 36 og upp í 48 stykki í kílóinu,“ segir Þorkell Pétursson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni, í færslunni.

Um er að ræða fyrsta loðnutúr Þorkels í hlutverki skipstjóra.

„Menn eru fullir bjartsýni hvað varðar vertíðina og vonandi fer loðnan brátt í hefðbundið göngumynstur. Það brældi í gær og þess vegna var ákveðið að fara í land þó við værum ekki alveg búnir að fylla. Það verður losað og síðan haldið beint út aftur. Menn geta ekki leyft sér að slappa af á vertíð eins og þessari. Það eru sko næg verkefni fram undan,“ segir Þorkell.

Loðnuflotinn er allur búinn að kasta enda hafi brælan gengið niður og skilyrði til veiða því mun betri. Skip Síldarvinnslunnar, Börkur NK, Barði NK og Beitir NK, eru öll þegar komin með afla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »