„Mér fannst við hafa fína stjórn á þessum leik þangað til að við skorum“, sagði annar markaskorara íslenska liðsins, Orri Steinn Óskarsson, strax eftir leik liðsins gegn Slóvakíu sem tapaðist 4-2 eftir frammistöðu sem var ekki góð á löngum köflum.
„Síðan förum við að verjast of mikið og leyfum þeim að taka of mikla stjórn á leiknum. Það verður okkur að falli í fyrri hálfleik. Svo fáum við á okkur tvö mörk strax í seinni. Ég er ekki búinn að sjá vítið aftur en það var svekkjandi líka og þeir komast á bragðið við það.“
Það gekk nokkuð erfiðlega með pressuna frá Slóvökunum og viðurkenndi Orri að þeir hafi sett mikla pressu á liðið sem kom Íslandi í vandræði.
„Þeir voru aggresívir á hafsentana okkar það var alveg augljóst og það var líka augljóst að það var mikið í húfi fyrir þá í dag. Þeir komu 100% út og við áttum í erfiðleikum með að koma boltanum í rólegheit og koma boltanum í spil út frá vörninni og við verðurm bara einfaldlega að gera betur en þetta í næsta leik og koma 100% í þann leik.“
Möguleikinn á að komast upp úr riðlinum er alveg farinn en það er séns að komast á EM 2024 í gegnum umspilið og væntanlega stefnan sett á það en Orri var spurður að því hvernig andrúmsloftið væri í klefanum strax eftir leik.
„Auðvitað bara svekkelsi og menn ekki ánægðir með þessa frammistöðu og við viljum að gera mikið betur. Við verðum klárir í leikinn á móti Portúgal og svo setjum við 100% fókus á verkefnið í mars.“