Stefnir á að finna sér nýtt lið í janúar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. janúar 2022 23:01 Jón Daði Böðvarsson í leik með íslenska landsliðinu. EPA-EFE/VAHRAM BAGHDASARYAN Jón Daði Böðvarsson hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Hann fær ekkert að spila með liði sínu Millwall og missti í kjölfarið sæti sitt í íslenska landsliðinu. Jón Daði var valinn fyrir komandi verkefni landsliðsins í Tyrklandi og fór yfir stöðu mála á samfélagsmiðlum sambandsins í dag.
Hinn þrítugi Jón Daði hefur bókstaflega verið í frystikistunni hjá Millwall það sem lifir leiktíðar. Hann hefur aðeins spilað 18 mínútur á leiktíðinni en þær mínútur komu í deildarbikarleik. Þar sem hann hefur ekkert spilað þá hefur Arnar Þór Viðarsson ekki valið hann í verkefni íslenska landsliðsins að undanförnu. Hann var hvorki valinn er landsliðið kom saman í október og nóvember á síðasta ári. Training in the rain(ing) in Belek, Turkey. We play @UgandaCranes on Wednesday. pic.twitter.com/ZnwN6hDsUk— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 11, 2022 „Framundan er að reyna finna sér nýtt lið og betra fótboltaumhverfi til að vera í. Maður er enn á góðum aldri og maður vill ekki sóa tíma sínum fram að sumri. Það eru einhverjar þreifingar í gangi og það er verið að vinna í því að finna nýtt félag fyrir mig til að komast í og komast aftur í gang,“ sagði Jón Daði við KSÍ fyrr í dag. Ísland mætir Úganda á morgun og Suður-Kóreu á laugardaginn en báðir leikirnir fara fram í Tyrklandi. Um leikina hafði Jón Daði eftirfarandi að segja: „Þessir leikir eru virkilega mikilvægir. Ég held að það sé gott fyrir okkur að stilla okkur saman sem lið. Þetta er hellings reynsla fyrir ungu strákana að komast inn í hlutina og læra á þetta allt saman.“ Að lokum var framherjinn spurður út í hápunkt landsliðsferilsins sem spannar 60 leiki til þessa sem og þátttöku á bæði Evrópu- og heimsmeistaramóti. „Þegar stórt er spurt. Þetta er búið að vera hellings ferðalag og ég virkilega stoltur að vera búinn að spila svona marga leiki fyrir land og þjóð. Það er mikið af augnablikum, allt Evrópumótið, það voru svo mikil læti og spenna í landinu. Held að það sé það sem stendur hvað mest upp úr, sérstaklega að skora á stórmóti. Það er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma,“ sagði Jón Daði að endingu.
Fótbolti Enski boltinn KSÍ Mest lesið Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Enski boltinn Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti Enn ein vonbrigðin fyrir United Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Íslenski boltinn Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Enski boltinn „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Guðrún skoraði og með fullt hús stiga á toppnum Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Messi minnist fallins félaga Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Hrósar Alonso fyrir að taka ekki við Liverpool eða Bayern: „Þarf ekki að sanna neitt“ Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Sjá meira