Fyrstu íbúarnir eru að fara að flytja inn í nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 25. september 2022 13:06 Móberg, nýja hjúkrunarheimilið á Selfossi er glæsilegt í alla staði með 60 herbergjum. Aðsend Mikil ánægja og tilhlökkun er á Selfossi með opnun nýs hjúkrunarheimilis á staðnum en þar verða sextíu íbúar, 40 af höfuðborgarsvæðinu og tuttugu af Suðurlandi. Fyrstu íbúarnir flytja inn í heimilið 10. október.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur tekið að sér rekstur nýja hjúkrunarheimilisins, sem hefur fengið nafnið Móberg. Gestum og gangandi bauðst að koma og skoða húsnæðið í vikunni og var það samdóma álit fólks að hjúkrunarheimilið væri allt hið glæsilegasta enda allur aðbúnaður þar eins og best verður á kosið. Díana Óskarsdóttir er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. „Já, nú styttist í þetta, við erum búin að bíða lengi og erum full tilhlökkunar að taka á móti fyrsti íbúunum. Við erum að fara að taka á móti fólki frá höfuðborgarsvæðinu til þess að reyna að létta á pressunni þar. Það eru alls staðar biðlistar, bæði hér og á höfuðborgarsvæðinu og út um allt land,“ segir Díana en um er að ræða tímabundin rými fyrir fólkið af höfuðborgarsvæðinu. Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (t.v.), sem tók á móti gestum, sem mættu til að skoða nýja hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi í vikunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson Nýja heimilið er byggt í hring þar sem hvert herbergi er um 25 fermetrar að stærð. Fimm deildir verða á heimilinu og verður fyrsta deildin opnuð 10. október þegar fyrstu íbúarnir flytja inn. Risa útigarður er við heimilið. „Við munum opna nokkuð bratt en jú, við byrjum kannski að taka inn eina til tvær deildir og svo bara koll af kolli eins fljótt og við getum,“ segir Díana. Ingunn Guðjónsdóttir (t.v.) og mamma hennar, Rannveig Einarsdóttir voru meðal fjölmargra gesta, sem skoðuð nýja heimilið.Magnús Hlynur Hreiðarsson Er búið að fylla heimilið nú þegar? „Við erum með nóg af fólki, sem er að bíða, já.“ Hvernig gengur að ráða starfsfólk ? „Það gengur nokkuð vel. Við erum langt komin með það, við erum komin með starfsfólk í fjórar einingar af fimm, þannig að þetta gengur,“ segir Díana. Díana segist skynja mikla tilhlökkun í samfélaginu fyrir opnun nýja hjúkrunarheimilisins Móbergs. „Þetta er glæsilegt heimili, algjörlega. Við erum mjög stolt og hlökkum til að taka á móti fyrstu íbúunum,“ sagði Díana. Og þessar tvær systur voru yfir sig hrifnar af nýja heimilinu, Blaka (t.v.) og Stella.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Hjúkrunarheimili Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Erlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Innlent Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Erlent Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Innlent Kanna hvar Perry fékk ketamínið Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Innlent Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Innlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira