„Umfangsmikil, flókin og tímafrek viðgerð“ fram undan

Vestmannaeyjastrengur 3 var lagður árið 2013.
Vestmannaeyjastrengur 3 var lagður árið 2013. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðrik

Bilanagreining á Vestmannaeyjastreng 3 hefur leitt í ljós að bilunin er ekki á landi eins og fyrstu greiningar bentu til heldur í sjó, um 1 km frá Landeyjasandi. Því er ljóst að fram undan er „umfangsmikil, flókin og tímafrek viðgerð“.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsnet en bilunin varð á mánudag, í kjölfarið varð rafmagnslaust í Vestmannaeyjum. 

Á meðan á viðgerðatíma stendur mun vestmannaeyjastrengur 1, ásamt varaafli, sjá Eyjamönnum fyrir rafmagni. 

Til öryggis munum við hjá Landsneti flytja auka varaaflsvélar til Vestmannaeyja til að tryggja að til staðar sé aukið rafmagn ef eitthvað kemur upp á,“ segir í tilkynningunni.

Þurfa að fá sérhæft viðgerðarskip og sérfræðinga til landsins

Landsnet er í nánu samstarfi við bæjaryfirvöld og almannavarnir í Vestmannaeyjum. Þá hafa þegar verið virkjaðar viðbragðsáætlanir er undirbúningur fyrir viðgerðir hafinn. 

„Ekki er vitað á þessu stigi hvað olli því að strengurinn bilaði né hvað viðgerðin mun taka langan tíma en við viðgerð eins og þessa þarf að fá sérhæft viðgerðaskip ásamt sérfræðingum til landsins. Auk þess þurfa veðurskilyrði að vera hagstæð til að hægt sé að fara í viðgerðina.“

Vestmannaeyjastrengur 3 var lagður árið 2013 en hann var framleiddur í verksmiðju ABB í Svíþjóð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert