Afreksfólk sem undirbýr sig fyrir alþjóðleg mót fær undanþágu til að æfa Anton Ingi Leifsson skrifar 3. desember 2020 20:16 Guðbjörg Jóna gæti því byrjað að æfa á ný. FRÍ Góðar fréttir bárust fyrir íslenskt íþróttafólk í dag.
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, greindi frá því í samtali við Einar Örn Jónsson í kvöldfréttum RÚV að afreksfólk sem væri að undirbúa sig undir alþjóðleg mót fengi að æfa. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, spretthlaupi, og Guðni Valur Guðnason, kringlukastari, tjáðu óánægju sína með æfingabannið í samtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur í Sportpakka gærkvöldsins. Þar sögðust þau hafa áhyggjur að æfingabannið myndi hafa áhrif á þau er þau reyndu að ná Ólympíulágmörkum en æfinga- og keppnisbann hefur ríkt hér á landi síðan í byrjun október. Klippa: Sportpakkinn - Afreksíþróttafólk fær ekki að æfa Lárus sagði hins vegar að ÍSÍ hafi í dag fundað með sóttvarnalækni, Þórólfi Guðnasyni, og fulltrúm Almannanvarna og eftir þann fund er ljóst að afreksíþróttafólk sem er að undirbúa sig fyrir stór mót fær að æfa. „Við áttum fund með sóttvarnalækni og Almannavörnum í hádeginu í dag, þar sem þessir hlutir voru ræddir,“ sagði Lárus Blöndal í samtali við Einar í dag. Við lögðum einmitt áherslu á þessi atriði, að auðvitað koma æfingum eldri hlutans í gang og keppni, þó að það verði eitthvað seinna, og síðan ekki hvað síst sko ef það tekst ekki þá verður eiginlega að reyna að ná til þessara krakka sem eru þarna á þessum framhaldsskólaaldri. Ég tel að það sé mjög mikilvægt og geri alveg ráð fyrir því og veit að sóttvarnayfirvöld eru jákvæð fyrir því að reyna eins og hægt er,“ segir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ. „Þannig að við gerum ráð fyrir því að flest okkar afreksfólk, sem er að keppa í einstaklingsgreinum til að mynda, komist þar inn, og líka geri ég ráð fyrir því að það eru hérna til dæmis veit ég nokkrir einstaklingar sem eru í þessum stóra hópi hjá HSÍ og þeir ættu að geta fengið þessa undanþágu líka.“ „Þannig að það er, hérna, þetta er alla vega viðleitni og er bara jákvætt að geta komið þessu áfram. En hins vegar náttúrulega eru menn að horfa til þess að þessar liðsíþróttir, að menn geti stundað þær hérna til að geta verið samkeppnishæfir á alþjóðlegum mótum á næsta ári. En það er, hérna, vonandi styttist í að það verði hægt.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Enski boltinn Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Napoli í kapphlaupið um Albert Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Dagskráin í dag: Hvort fer PSG eða Dortmund í úrslit Meistaradeildarinnar? Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Crystal Palace lék sér að Man United Þjálfari Luka og Kyrie framlengir Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Mari meyr eftir sigurinn Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Mjölnisfólk fylgist með bakgarðshlaupurum: „Ótrúlegir íþróttamenn“ Sjá meira