Krummi í Kötlu lærði að tala af sjálfsdáðum

Rebecca og Krummi.
Rebecca og Krummi. Ljósmynd/Ágúst Elí Ágústsson

„Hvernig heldurðu að mér hafi liðið eitt dimmt vetrarkvöld úti í fjárhúsi þegar ég heyri hann allt í einu kalla mamma? Ég hélt fyrst að þetta væri dóttir mín. Svo sneri ég mér við og þá var þetta hrafninn. Þetta var ekkert smá óhugnanlegt, mig langaði bara að flytja úr landi,“ segir Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld, bóndi í Hólum í Hvammssveit í Dölum.

Rebecca rekur dýragarð sem er eins konar dýraathvarf ásamt fjölskyldu sinni í Hólum nálægt Búðardal. Dýragarðurinn er einstakur fyrir margra hluta sakir en það allra furðulegasta við hann hlýtur þó að vera talandi hrafninn Krummi.

Landsmenn kannast margir hverjir við Krumma úr þáttaröðinni Kötlu á Netflix þar sem hann birtist með einkennandi hvíta fjöður. Það kemur þó mörgum á óvart að þessi fjölhæfi fugl er ekki einungis stórleikari heldur getur hann einnig sagt ýmis orð og setningar eins og „hæ mamma“.

 „Hann er alveg ótrúlegur, hann kann að segja hæ, mamma, ha, hvað, Baltasar, já og nei. Stundum talar hann líka alveg eins og útvarp,“ segir Rebecca í samtali við Morgunblaðið.

Lærði sjálfur að tala

Ætla mætti að Krummi hefði staðið í strangri þjálfun hjá fjölskyldunni en að sögn Rebeccu er ekki svo. Segir hún hrafninn hafa tekið upp á þessu athæfi að eigin frumkvæði en fjölskyldan í Hólum er dugleg að tala við dýrin sem hjá henni búa. Byrjaði hrafninn að þylja upp orð þegar hann var um tveggja ára en líkt og hjá mörgum mannanna börnum var fyrsta orðið mamma. Eins og gefur að skilja kom það fjölskyldunni í opna skjöldu enda vissu þau ekki að hrafnar gætu yfirhöfuð talað.

Hefur hann síðan þá verið duglegur að læra ný orð og kann meira að segja að fara með dónaleg orð. „Hann er þó sem betur fer hættur því,“ segir Rebecca.

Krummi hefur verið hjá fjölskyldunni í Hólum frá því að …
Krummi hefur verið hjá fjölskyldunni í Hólum frá því að hann var ungi. Ljósmynd/Ágúst Elí Ágústsson

Fjölskyldan í Hólum hefur sinnt Krumma frá því hann kom til hennar sem ungi fyrir tæpum sex árum en hann hafði lent í slysi og þurfti á aðhlynningu að halda. Að sögn Rebeccu fór þó aldrei á milli mála að hrafninn var fullur af lífsvilja og leyndi það sér ekki á matarlystinni. Í dag er Krummi með sérútbúna stíu í útihúsinu hjá fjölskyldunni í Hólum en passa þarf vel upp á hann enda getur hann ekki flogið.

„Þegar hann fer út er hann hræddur við aðra hrafna. Þegar það kemur villtur hrafn þá öskrar hann á mig. Ég fer aldrei langt frá honum þegar hann er úti. Svo kalla ég bara á hann og þá kemur hann inn. Hann er svo gáfaður.“

Þekkti sig á skjánum

Rebecca segir þau í fyrstu ekki hafa tekið vel í þá tillögu að Krummi léki í netflixþáttaröðinni Kötlu en á endanum hafi þau fallist á hugmyndina. Segir hún kvikmyndagerðarfólkið hafa komið fram af mikilli virðingu við dýrið og er hún því afar þakklát. Rebecca var þó aldrei langt undan og fylgdist grannt með tökunum.

Þegar þættirnir voru loks sýndir fyrst í sjónvarpi fékk hrafninn að sjálfsögðu að fylgjast með. Kom það fjölskyldunni skemmtilega á óvart hve vel áttaður fuglinn var við áhorfið. „Þegar hann sá Ingvar tók maður eftir að hann þekkti hann og hann þekkti líka umhverfið. Svo þegar myndavélinni var beint að honum þá hrópaði hann: „Krummi!“ Hann þekkti sjálfan sig í sjónvarpinu, þetta var alveg ótrúlegt.“

Ætluðu aldrei að stofna dýragarð

Dýragarðurinn í Hólum hefur verið opinn í fjögur ár en að sögn Rebeccu var það fyrir hálfgerða tilviljun að reksturinn fór af stað. Hafði fjölskyldan verið dugleg að taka að sér slösuð dýr sem þörfnuðust aðhlynningar, var því fjöldinn allur af mismunandi tegundum saman kominn á sveitabænum. Þetta spurðist út og í kjölfarið fóru gestir og gangandi að stoppa við á bænum til að kíkja á dýralífið sem þar var að finna. 

Fjölskyldan í Hólum ásamt dýrunum sem finna má á dýragarðinum …
Fjölskyldan í Hólum ásamt dýrunum sem finna má á dýragarðinum þeirra. Ljósmynd/Dagmar Helga Bjartsdóttir

Að sögn Rebeccu er Krummi mikið aðdráttarafl fyrir dýragarðinn en fólk á það til að bregða þegar fuglinn byrjar að tjá sig. „Þegar fólk heimsækir okkur þá trúir það varla að Krummi tali. Því bregður bara,“ segir hún hlæjandi.

Í Hólum eru í kringum 20 dýrategundir sem þarf að sinna, má hér meðal annars nefna naggrísi, geitur, páfagauka, kalkúna og svínið Svínka. Í dag er dýragarðurinn að mestu rekinn með sjálfboðaliðastarfi fjölskyldunnar. Er Rebecca því að jafnaði með aðra vinnu á veturna. Lýsir hún dýragarðinum sem eins konar áhugamáli sem fjölskyldan sinnir saman af miklu kappi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert