Stilla saman strengi sína gegn Kína Samúel Karl Ólason skrifar 27. október 2020 13:05 Mark Esper, Mike Pompeo, Rajnath Singh og Subrahmanyam Jaishankar ræddu við blaðamenn í dag. AP/Altaf Qadri
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin og Indland þurfi að vinna saman til að sporna gegn þeirri „ógn“ sem stafi af Kína. Þetta sagði ráðherrann í Indlandi þar sem hann og Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, funduðu með Subrahmanyam Jaishankar, utanríkisráðherra Indlands, og Rajnath Singh, varnarmálaráðherra, á árlegum fundi. Eftir fundinn var tilkynnt að skrifað hefði verið undir samkomulag um að ríkin deildu upplýsingum úr gervihnöttum og kortaupplýsingum, samkvæmt frétt Reuters. „Það er margt að gerast á meðan lýðræðisríkin okkar stilla saman strengi sína til að verja borgara okkar og hinn frjálsa heim,“ sagði Pompeo eftir fundinn. Hann sagði að leiðtogar ríkjanna tveggja og borgarar sæu sífellt betur að Kommúnistaflokkur Kína væri ekki vinur lýðræðis, laga, gagnsæis og annarra gilda lýðræðissamfélaga. Esper sagði að samkomulagið myndi auka samstarf herja Indlands og Bandaríkjanna Samband Bandaríkjanna og Kína hefur beðið hnekki á undanförnum mánuðum og það sama má segja um samband Indlands og Kína. Þá stefna Bandaríkin að því að selja Indverjum orrustuþotur og dróna. Pompeo hefur varið miklu púðri í að stappa stálinu í bandamenn Bandaríkjanna í Austur-Asíu og Kyrrahafinu og reyna að draga úr auknum áhrifum Kína en mikil spenna er á milli ríkjanna. Þá hefur komið til átaka á milli indverskra og kínverskra hermanna á landamærum ríkjanna. Tuttugu indverskir hermenn féllu í átökum í sumar og hefur mikil spenna verið á landamærunum. Pompeo og Esper vottuðu þeim hermönnum virðingu sína í ferðinni, samkvæmt AP fréttaveitunni. Fyrr í þessum mánuði buðu Indverjar Áströlum að taka þátt í árlegum flotaæfingum með Bandaríkjunum og Japan. Yfirvöld í Kína hafa gagnrýnt þessar æfingar og segja þær ógna friði á svæðinu. Wang Wenbin, talsmaður Utanríkisráðuneytis Kína, sagði blaðamönnum í dag að Pompeo ætti að láta af kaldastríðshugarfari sínu.
Bandaríkin Indland Kína Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Búast má við slyddu Veður Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira