Fótbolti

Kim Kardashian sá Arsenal tapa í gær

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kim Kardashian með undrunarsvip á andlitinu.
Kim Kardashian með undrunarsvip á andlitinu. getty/Marc Atkins

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian var í stúkunni á Emirates þegar Arsenal tapaði fyrir Sporting eftir vítaspyrnukeppni í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.

Sjö ára sonur Kardashians, Saint, sem hún á með rapparanum Kanye West, er stuðningsmaður Arsenal. 

Mamman fór með hann á leikinn á Emirates í gær en því miður fyrir hann töpuðu Skytturnar í vítakeppni, 5-3.

Saint West fékk að sjá sína menn í gær.getty/Charlotte Wilson

Kardashian var þó víst ekki bara á Emirates til að fylgjast með leiknum heldur einnig til að taka upp einhvers konar heimildarmynd.

Sporting og Arsenal skildu jöfn í fyrri leiknum í Lissabon, 2-2. Leikurinn í gær endaði líka með jafntefli, 1-1, og því réðust úrslit einvígisins í vítakeppni. Þar höfðu Portúgalarnir betur, 5-3, og þeir verða því í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×