Súpersamvinna Son og Kane skilar hverju markinu á fætur öðru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2020 10:31 Heung-Min Son og Harry Kane hafa fagnað mörgum mörkum saman á þessu tímabili en Tottenham er markahæsta liðið í deildinni. Getty/Andrew Boyers Son Heung-min tryggði Tottenham sigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og enn á ný skoraði hann eftir stoðsendingu frá Harry Kane. Samvinna Harry Kane og Son Heung-min í framlínu Tottenham hefur alltaf verið góð en hún hefur samt verið í öðrum klassa á þessu tímabili. Son Heung-min er nú markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili með átta mörk og Harry Kane er sá sem hefur gefið flestar stoðsendingar eða átta. Breska ríkisútvarpið tók saman tölurnar með þessu frábæra tvíeyki í framlínunni hjá Jose Mourinho. Son Heung-min and Harry Kane linked up yet again as Spurs moved up to fifth in the Premier League. https://t.co/7BYxbHWFN2 pic.twitter.com/etpFUTDDN9— BBC Sport (@BBCSport) October 27, 2020 Harry Kane hefur alls komið með beinum hætti að þrettán mörkum í fyrstu sex leikjum Tottenham með fimm mörkum og átta stoðsendingum en liðið hefur skorað samtals sextán mörk. Kane hefur því komið að 81 prósent marka liðsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa á tímabilinu. Aldrei áður hefur leikmaður náð að koma með beinum hætti að þrettán mörkum í fyrstu sex umferðum ensku úrvalsdeildarinnar og Son Heung-min er ekki langt á eftir því hann hefur komið að tíu mörkum með átta mörkum og tveimur stoðsendingum. Það er einkum súpersamvinna Son og Kane skilar hverju markinu á fætur öðru. Kane átti stoðsendinguna á Son í sigurmarkinu í gær en þeir hafa unnið saman í átta öðrum mörkum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Son and Kane combine for their 29th Premier League goal Only Drogba and Lampard have combined for more in Premier League history. pic.twitter.com/cc7rpcqYuF— B/R Football (@brfootball) October 26, 2020 Harry Kane lagði upp fjögur mörk fyrir Son í 5-2 sigri á Southampton. Þeir lögðu upp mark fyrir hvorn annan í 6-1 sigrinum á Manchester United og endurtóku síðan leikinn í 3-3 jafnteflinu á móti West Ham. Samvinna Harry Kane og Son Heung-min hefur því skilað Tottenham níu mörkum á þessu tímabili og báðir hafa þeir enn fremur komið að tíu mörkum eða meira í þessum fyrstu sex umferðum. Þegar við skoðum allan feril þeirra saman þá hafa þeir búið saman til 29 mörk fyrir Tottenham og nálgast þar met Didier Drogba og Frank Lampard sem bjuggu saman til 36 mörk fyrir Chelsea liðið á sama tíma. Flest mörg búin til saman í ensku úrvalsdeildinni: 36 mörk - Didier Drogba og Frank Lampard (Chelsea) 29 mörk - Harry Kane og Son Heung-min (Tottenham) 29 mörk - David Silva og Sergio Aguero (Man City) 29 mörk - Robert Pires og Thierry Henry (Arsenal) 27 mörk - Darren Anderton og Teddy Sheringham (Tottenham) PL top scorer: Son Heung-Min Most assists: Harry Kane Top-scoring club: Tottenham pic.twitter.com/7u9r9bNMZc— ESPN FC (@ESPNFC) October 26, 2020 Enski boltinn Mest lesið Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Enski boltinn Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti Enn ein vonbrigðin fyrir United Enski boltinn Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Íslenski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Enski boltinn Fleiri fréttir Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Sjá meira
Son Heung-min tryggði Tottenham sigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og enn á ný skoraði hann eftir stoðsendingu frá Harry Kane. Samvinna Harry Kane og Son Heung-min í framlínu Tottenham hefur alltaf verið góð en hún hefur samt verið í öðrum klassa á þessu tímabili. Son Heung-min er nú markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili með átta mörk og Harry Kane er sá sem hefur gefið flestar stoðsendingar eða átta. Breska ríkisútvarpið tók saman tölurnar með þessu frábæra tvíeyki í framlínunni hjá Jose Mourinho. Son Heung-min and Harry Kane linked up yet again as Spurs moved up to fifth in the Premier League. https://t.co/7BYxbHWFN2 pic.twitter.com/etpFUTDDN9— BBC Sport (@BBCSport) October 27, 2020 Harry Kane hefur alls komið með beinum hætti að þrettán mörkum í fyrstu sex leikjum Tottenham með fimm mörkum og átta stoðsendingum en liðið hefur skorað samtals sextán mörk. Kane hefur því komið að 81 prósent marka liðsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa á tímabilinu. Aldrei áður hefur leikmaður náð að koma með beinum hætti að þrettán mörkum í fyrstu sex umferðum ensku úrvalsdeildarinnar og Son Heung-min er ekki langt á eftir því hann hefur komið að tíu mörkum með átta mörkum og tveimur stoðsendingum. Það er einkum súpersamvinna Son og Kane skilar hverju markinu á fætur öðru. Kane átti stoðsendinguna á Son í sigurmarkinu í gær en þeir hafa unnið saman í átta öðrum mörkum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Son and Kane combine for their 29th Premier League goal Only Drogba and Lampard have combined for more in Premier League history. pic.twitter.com/cc7rpcqYuF— B/R Football (@brfootball) October 26, 2020 Harry Kane lagði upp fjögur mörk fyrir Son í 5-2 sigri á Southampton. Þeir lögðu upp mark fyrir hvorn annan í 6-1 sigrinum á Manchester United og endurtóku síðan leikinn í 3-3 jafnteflinu á móti West Ham. Samvinna Harry Kane og Son Heung-min hefur því skilað Tottenham níu mörkum á þessu tímabili og báðir hafa þeir enn fremur komið að tíu mörkum eða meira í þessum fyrstu sex umferðum. Þegar við skoðum allan feril þeirra saman þá hafa þeir búið saman til 29 mörk fyrir Tottenham og nálgast þar met Didier Drogba og Frank Lampard sem bjuggu saman til 36 mörk fyrir Chelsea liðið á sama tíma. Flest mörg búin til saman í ensku úrvalsdeildinni: 36 mörk - Didier Drogba og Frank Lampard (Chelsea) 29 mörk - Harry Kane og Son Heung-min (Tottenham) 29 mörk - David Silva og Sergio Aguero (Man City) 29 mörk - Robert Pires og Thierry Henry (Arsenal) 27 mörk - Darren Anderton og Teddy Sheringham (Tottenham) PL top scorer: Son Heung-Min Most assists: Harry Kane Top-scoring club: Tottenham pic.twitter.com/7u9r9bNMZc— ESPN FC (@ESPNFC) October 26, 2020
Flest mörg búin til saman í ensku úrvalsdeildinni: 36 mörk - Didier Drogba og Frank Lampard (Chelsea) 29 mörk - Harry Kane og Son Heung-min (Tottenham) 29 mörk - David Silva og Sergio Aguero (Man City) 29 mörk - Robert Pires og Thierry Henry (Arsenal) 27 mörk - Darren Anderton og Teddy Sheringham (Tottenham)
Enski boltinn Mest lesið Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Enski boltinn Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti Enn ein vonbrigðin fyrir United Enski boltinn Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora Íslenski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Enski boltinn Fleiri fréttir Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Sjá meira