Skoraði tvö mörk í Meistaradeildinni

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk í kvöld.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk í kvöld. Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvívegis fyrir Kielce þegar liðið fékk Pick Szeged í heimsókn í Meistaradeildinni í handknattleik í Póllandi í dag.

Leiknum lauk með þriggja marka sigri Kielce, 26:23, en pólska liðið leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 12:7. 

Pick Szeged tókst að minnka muninn í eitt mark þegar sex mínútur voru til leiksloka, 22:21, en lengra komst ungverska liðið ekki og Kielce fagnaði sigri.

Haukur Þrastarson komst ekki á blað hjá Kielce en hann er að koma til baka eftir meiðsli. Þá var Stefán Rafn Sigurmannsson ekki í leikmannahópi Pick Szeged vegna meiðsla.

Kielce er með tvö stig í efsta sæti A-riðils eftir tvo leiki en Pick Szeged er á botninum án stiga.

Þá vann Aalborg níu marka sigur gegn Motor Zaporozhye í Danmörku, 38:29. en danska liðið leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 17:13.

Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aalborgar en liðið er með fullt hús stiga eða 4 stig í efsta sæti B-riðils.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert