Stoltur af því að vera hvítur, miðaldra karlmaður Sunna Sæmundsdóttir skrifar 4. maí 2021 18:12 Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins. vísir/Vilhelm Deilt er um frumvarp um samræmda móttöku flóttafólks. Þingmenn Miðflokksins mótmæla því og telja að það muni leiða til holskeflu hælisumsókna og kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.
Önnur umræða um frumvarp félags- og barnamálaráðherra um breytingar á lögum um málefni innflytjenda fer nú fram á Alþingi. Í frumvarpinu er lagt til að Fjölmenningarsetri verði falið víðtækara hlutverk vegna samræmdar móttöku flóttafólks. Þetta verði gert með því að fela stofnuninni að veita sveitarfélögum faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf við móttöku fólksins. Með samræmdu móttökukerfi er unnið að því að tryggja flóttafólki jafna þjónustu óháð því hvernig það kemur til landsins. Þingmenn Miðflokksins hafa mótmælt frumvarpinu og Birgir Þórarinsson sagði vert að staldra við að samkvæmt frumvarpinu yrði enginn greinarmunur gerður á kvótaflóttamönnum og hælisleitendum sem fá dvalarleyfi þegar kemur að þjónustu. Hann sagði sérkennilegt að yfirfæra réttindi kvótaflóttafólks yfir á hælisleitendur og bætti við að þetta myndi sennilega leiða til gríðarlegs kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, talaði á svipuðum nótum og telur að hælisumsóknum muni stórfjölga. „Það er grundvallaratriði í þessum málum að upplýsingar um hvaða þjónusta er í boði á hverjum stað og hvaða reglur gilda, þær dreifast mjög hratt og eru misnotaðar í sumum tilvikum af mjög hættulegum glæpahópum,“ sagði Sigmundur. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins. Þingmenn flokksins telja að frumvarp um samræmda móttöku flóttafólks muni leiða til holskeflu hælisumsókna og kostnaðarauka.vísir/Vilhelm Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar sagði vont ef tónninn sem þingmenn Miðflokksins væru að slá í umræðunni virtust vera rödd þingheims. Því fari fjarri. Heilu atvinnugreinarnar eigi mikið undir innflytjendum komið sem bæti og styrki samfélagið. Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins, sagði Miðflokksmenn gjarnan vera uppnefnda rasista og hvíta, miðaldra, freka karlmenn vegna afstöðu sinnar í málaflokknum. „Ég er nú bara mjög stoltur af því að vera hvítur miðaldra karlmaður. En það gerir mig ekki að vanhæfum manni fyrir vikið. Ég kveinka mér í raun og veru ekkert undan því,“ sagði hann og bætti við að engin mannvonska felist í því að ræða málin. Sigurður sagði kvótaflóttamannakerfið vandað og að leggja ætti áherslu á að styrkja það. „Við viljum ekki að það kerfi sem við bjóðum upp sé misnotað og einhver keppni um að við ætlum að vera góðasta fólkið í öllum heiminum; hana er ekki hægt að vinna, alls ekki með þessari aðferð. Við þurfum að horfa okkur nær. Við þurfum að sýna ráðdeildarsemi í fjármálum. Við þurfum að vera hnitmiðuð í því sem við tökum okkur fyrir hendur og við eigum að tala um hlutina eins og þeir eru,“ sagði Sigurður. Samkvæmt frumvarpinu er ráð fyrir að kostnaðarauki ríkissjóðs vegna frumvarpsins verði 23,7 milljónir króna.
Alþingi Hælisleitendur Innflytjendamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Innlent Fleiri fréttir Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Sjá meira