Útsýnispallur leiði ferðafólk í kaffi og kleinur í Skálavík Kristján Már Unnarsson skrifar 20. október 2021 22:11 Feðginin Hafþór Gunnarsson og Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir við eyðibýlið í Skálavík. Arnar Halldórsson Eigendur eyðijarðar í Skálavík, vestan Bolungarvíkur, sjá fram á að útsýnispallurinn á Bolafjalli komi til með að hafa svo mikið aðdráttarafl að grundvöllur verði til að opna kaffihús. Bóndabær, sem fór í eyði fyrir hartnær sextíu árum, muni þannig lifna við.
Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir úr Skálavík. Smíði útsýnispallsins hefur vakið mikla athygli en núna er stefnt á að hann verði opnaður næsta sumar. Af Bolafjalli er stutt niður í Skálavík en þar hittum við feðginin Hafþór Gunnarsson, eiganda Minnibakka, og Guðbjörgu dóttur hans, sem er forseti bæjarstjórnar Bolungarvíkur. Minnibakki er á sjávarbakkanum í Skálavík.Arnar Halldórsson „Miðað við þá aðsókn sem hefur verið meðan á smíðinni stendur þá kemur til með að fjölga allverulega ferðamönnum hérna vestur. Og það er mikið aðdráttarafl, þessi pallur. Og hann leiðir eitthvað því að fólk sem fer upp á Bolafjall sér hérna niður í Skálavíkina,“ segir Hafþór, sem er pípulagningameistari og fréttaritari Stöðvar 2. Bærinn Minnibakki. Fjallið Öskubakur í baksýn. Handan við það er Galtarviti.Arnar Halldórsson „Athyglin sem þessi framkvæmd hefur fengið bara nú þegar, og hann er ekki tilbúinn, er gígantísk,“ segir Guðbjörg Stefanía, sem jafnframt er leikskólakennari í Bolungarvík. „Og þá er það spurning: Hvar getur það fengið sér kaffi og kleinur? Það er náttúrlega hér á Minnibakka,“ segir Hafþór. Íbúðarhúsið er frá árinu 1906. Þar var búið til ársins 1964.Arnar Halldórsson Íbúðarhúsið á Minnibakka var reist árið 1906 en jörðin fór í eyði árið 1964, sú síðasta í Skálavík. Þau feðginin taka fram að mikið þurfi að gera fyrir húsið en draumurinn sé að geta opnað næsta sumar, þó ekki væri nema fyrir hópa. „Ferðamennskan snýst um það að stoppa ferðamenn. Og það gæti átt heima hér,“ segir Hafþór. Stór salur er í fyrrum útihúsi, sambyggðu íbúðarhúsinu á Minnibakka.Arnar Halldórsson Guðbjörg leggur áherslu á að það sé íbúanna í Bolungarvík að nýta þau tækifæri sem pallurinn skapi. „Núna ættu þeir að standa upp með jákvæðnina að vopni og finna segla hérna, enn frekar fyrir ferðamenn.“ -Þannig að það verði ekki bara Ísfirðingar og Ísafjarðarkaupstaður sem græði? „Nei, við viljum líka græða,“ svarar Guðbjörg og hlær. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Bolungarvík Ferðamennska á Íslandi Útsýnispallur á Bolafjalli Tengdar fréttir Oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við Aðstandendur útsýnispallsins á Bolafjalli voru oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við byggingu pallsins, að sögn bæjarstjóra Bolungarvíkur. En ástríðan fyrir verkefninu trompaði öll bakslög og nú er pallurinn nánast tilbúinn. 13. september 2021 20:30 Stórum áfanga náð á útsýnispallinum á Bolafjalli Það er að koma lokamynd á útsýnispallinn á hinu 640 metra háa Bolafjalli við Bolungarvík. Pallurinn opnar í haust, aðeins tveimur árum eftir að hugmyndin kom fyrst upp. 26. ágúst 2021 09:29 Á hengiflugi í hlíðum Bolafjalls Þessa dagana er unnið að undirbúningi uppsetningar á einum magnaðasta útsýnispalli landsins á tindi Bolafjalls. Pallurinn verður tilbúinn seinnipart næsta sumars eða í haustbyrjun. 2. ágúst 2020 20:01 Reikna með tugþúsundum á útsýnispall í háloftunum í Bolungarvík Bolvíkingar eiga von á því að tugir þúsunda ferðamanna muni nýta sér útsýnispall á Bolafjalli í Bolungarvík. 7. febrúar 2019 15:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Innlent Skoða hvort flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fleiri fréttir Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Skoða hvort flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Sjá meira
Oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við Aðstandendur útsýnispallsins á Bolafjalli voru oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við byggingu pallsins, að sögn bæjarstjóra Bolungarvíkur. En ástríðan fyrir verkefninu trompaði öll bakslög og nú er pallurinn nánast tilbúinn. 13. september 2021 20:30
Stórum áfanga náð á útsýnispallinum á Bolafjalli Það er að koma lokamynd á útsýnispallinn á hinu 640 metra háa Bolafjalli við Bolungarvík. Pallurinn opnar í haust, aðeins tveimur árum eftir að hugmyndin kom fyrst upp. 26. ágúst 2021 09:29
Á hengiflugi í hlíðum Bolafjalls Þessa dagana er unnið að undirbúningi uppsetningar á einum magnaðasta útsýnispalli landsins á tindi Bolafjalls. Pallurinn verður tilbúinn seinnipart næsta sumars eða í haustbyrjun. 2. ágúst 2020 20:01
Reikna með tugþúsundum á útsýnispall í háloftunum í Bolungarvík Bolvíkingar eiga von á því að tugir þúsunda ferðamanna muni nýta sér útsýnispall á Bolafjalli í Bolungarvík. 7. febrúar 2019 15:45