Hlupu 562 kilómetra um helgina

Mari Järsk.
Mari Järsk. Ljósmynd/Aðsend

Þorleifur Þorleifsson hafnaði í 11. sæti í bakgarðshlaupi í Rettert í Þýskalandi um helgina en Þorleifur setti nýtt Íslandsmet í hlaupinu.

Í bakgarðshlaupi er hlaupinn 6,7 kílómetra langur hringur á hverjum klukkutíma þangað til keppendur gefast upp.

Alls hljóp Þorleifur 50 hringi, samtals 335 kílómetra, en Íslandsmetið í bakgarðshlaupi er 44 hringir.

Mari Järsk, sem átti Íslandsmetið,  hljóp 34 hringi eða 227 kílómetra og hafnaði í fimmta sæti í kvennaflokki.

Þorleifur Þorleifsson til vinstri.
Þorleifur Þorleifsson til vinstri. Ljósmynd/Kristófer Þorgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert