Ungstirnið framlengir í Garðabænum

Eggert Aron Guðmundsson í leik með Stjörnunni gegn Fylki á …
Eggert Aron Guðmundsson í leik með Stjörnunni gegn Fylki á síðasta tímabili. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eggert Aron Guðmundsson, hinn ungi og bráðefnilegi miðjumaður Stjörnunnar, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild félagsins, sem gildir til loka tímabilsins 2024.

Eggert Aron, sem æfði á dögunum með danska stórliðinu FC Kaupmannahöfn, er aðeins 17 ára gamall og stóð sig afar vel með aðalliði Stjörnunnar á síðasta tímabili.

Hann lék alls 15 leiki í úrvalsdeildinni síðastliðið sumar og skoraði eitt mark, glæsilegt mark gegn KR á Meistaravöllum.

„Eggert átti frábæra spretti með liðinu í sumar og verður klárlega spennandi að fylgjast með honum vaxa sem leikmanni núna í ár. Þetta eru gleðitíðindi[.]

Við óskum Eggerti innilega til hamingju með nýjan samning! Eggert er maðurinn,“ sagði meðal annars í tilkynningu knattspyrnudeildar Stjörnunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert