Real mis­steig sig gegn Geta­fe

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það gekk ekkert upp sóknarlega hjá Real í kvöld.
Það gekk ekkert upp sóknarlega hjá Real í kvöld. EPA-EFE/Kiko Huesca

Spánarmeisturum Real Madrid mistókst að sækja þrjú stig er liðið mætti Getafe í kvöld. Lokatölur 0-0 á Coliseum Alfonso Perez-vellinum.

Zinedine Zidane, þjálfari Real, ákvað að byrja með þá Karim Benzema og Toni Kroos á bekknum og þá var liðið einkar fáliðið í öftustu línu en Ferland Mendy, Nacho og Federico Valverde voru fjarri góðu gamni. Bætast þeir við langan meiðslalista Real Madrid.

Zidane hefur ef til vill haft meiri áhyggjur af varnarlínu sinni heldur en sóknarlínunni en það fór svo að liðið hélt hreinu en tókst ekki að brjóta ísinn hinum megin. Benzema kom inn af bekknum þegar 25 mínútur lifðu leiks en Kroos sat allan tímann á varamannabekknum.

Lokatölur 0-0 og Real náði því ekki að minnka bilið milli sín og nágrannanna í Atlético. Síðarnefnda liðið er sem fyrr á toppi deildarinnar, nú með þriggja stiga forystu þegar sjö umferðir eru eftir. Þá á Barcelona leik til góða og gæti með honum skotist upp fyrir Real.


Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira