Körfubolti

Luka þarf að endur­taka leikinn gegn Clippers ef Dallas ætlar að eiga mögu­leika

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessi þarf að eiga stórleik til að Dallas Mavericks komist áfram.
Þessi þarf að eiga stórleik til að Dallas Mavericks komist áfram. Ron Jenkins/Getty Images

Slóveninn Luka Dončić og liðsfélagar hans í Dallas Mavericks mæta Phoenix Suns í oddaleik um sæti í úrslitum Vesturdeildar NBA á miðnætti. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Dončić var gagnrýndur fyrr á leiktíðinni fyrir að vera ekki í nægilega góðu formi og hann hefur viðurkennt það. Hann hefur hins vegar verið upp á sitt besta í úrslitakeppninni, það er þegar hann hefur verið leikfær.

Hinn 23 ára gamli Slóveni hefur verið að glíma við meiðsli og missti af þremur leikjum í undanúrslitum gegn Utah Jazz. Síðan þá hefur hann verið upp á sitt allra besta og nú er Dallas – sem endaði í 4. sæti Vesturdeildar NBA – komið í oddaleik gegn Phoenix Suns – liðinu með besta árangur deildarinnar – um sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar.

Á síðustu leiktíð datt Dallas út í oddaleik í 8-liða úrslitum Vesturdeildar gegn Los Angeles Clippers. Liðið frá Englaborginni vann stórsigur, 126-111, þrátt fyrir stórleik Luka sem skoraði 46 stig og gaf 14 stoðsendingar.

Dallas þarf á annarri slíkri frammistöðu að halda í kvöld en miðað við frammistöður Luka til þessa í einvíginu gegn Suns má reikna með enn einni sýningunni í kvöld. Til að Dallas fari áfram þarf liðið líka að sigra í Phoenix en það hefur ekki enn gerst í einvíginu.

Tölfræði Luka í einvíginu gegn Suns

  1. Phoenix Suns 121-114 Dallas Mavericks: 45 stig, 8 stoðsendingar og 12 fráköst.
  2. Phoenix Suns 129-109 Dallas: 35 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst.
  3. Dallas Mavericks 103-94 Phoenix Suns: 26 stig, 9 fráköst og 13 fráköst.
  4. Dallas Mavericks 111-101Phoenix Suns: 26 stig, 11 stoðsendingar og 7 fráköst.
  5. Phoenix Suns 110-80 Dallas Mavericks: 28 stig, 2 stoðsendingar og 11 fráköst.
  6. Dallas Mavericks 113-86 Phoenix Suns: 33 stig, 8 stoðsendingar og 11 fráköst.

Leik Suns og Mavericks má sjá í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 2. Útsending hefst klukkan 00.00 eða á miðnætti.


NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×