Yfirgefur sænska félagið

Finnnur Tómas Pálmason í leik með KR síðasta sumar.
Finnnur Tómas Pálmason í leik með KR síðasta sumar. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki

Knattspyrnumaðurinn Finnur Tómas Pálmason og sænska félagið Norrköping hafa komist að samkomulagi um að hann yfirgefi félagið. Norrköping greindi frá á heimasíðu sinni í kvöld.

Finnur kom til Norrköping á síðasta ári en lék með KR að láni síðasta sumar og spilaði aldrei deildarleik með sænska liðinu, en kom við sögu í tveimur bikarleikjum. 

Finnur, sem gæti leikið sinn fyrsta landsleik gegn Angóla eða Suður-Kóreu í vikunni, hefur leikið 41 leik með KR í efstu deild og skorað í þeim eitt mark. Hann hefur einnig leikið 12 leiki með Þrótti úr Reykjavík í 1. deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert