Innlent

Fjórir kyn­ferðis­brota­menn sluppu við fangelsi vegna fyrningar

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Eyrarbakki
Eyrarbakki Vísir/Vilhelm

Tugir brotamanna sleppa við afplánun í fangelsi vegna fyrningar brota á hverju ári. Á undanförnum fimm árum hafa fjórir kynferðisbrotamenn sloppið við fangelsisvist.

Þetta kemur fram í svari Jóns Gunnarssonar, dómsmálaráðherra, við fyrirspurn Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata. En hann vildi vita hver biðtíminn væri eftir afplánun og hversu margir dæmdir einstaklingar hefðu aldrei afplánað vegna fyrningar refsidóms.

Undanfarin tíu ár hafa á bilinu 14 til 35 brotamenn sloppið við fangelsisvist af þessari ástæðu. Algengast er að þetta séu einstaklingar sem hafa brotið umferðarlög.

„Hjá Fangelsismálastofnun er mikil áhersla lögð á að fullnusta refsingar áður en fyrningarfrestur rennur út. Reynt er að forgangsraða dómþolum eftir alvarleika brota og lengd refsingar og þannig er áhersla lögð á að reyna að fullnusta sem fyrst refsingar fyrir kynferðisbrot og alvarleg ofbeldisbrot. Þá óska sumir dómþolar eftir því að fá að hefja afplánun sína sem fyrst og reynir stofnunin að verða við því,“ segir í svarinu.

29 ofbeldismenn

Engu að síður eru kynferðisbrotamenn og ofbeldismenn meðal þeirra sem sleppa. Fjórir kynferðisbrotamenn hafa sloppið við afplánun undanfarin tíu ár, allir á undanförnum fimm árum og þar af tveir árið 2020. Ofbeldismenn voru umtalsvert fleiri, 29 talsins.

Gísli Rafn spurði ráðherra um biðtíma í afplánun.Píratar

43 einstaklingar sem dæmdir voru fyrir þjófnað eða skjalafals sluppu við afplánun, 51 sem dæmdir voru fyrir fíkniefnabrot og 131 sem dæmdir voru fyrir umferðarlagabrot. Einnig 9 fyrir önnur en ótilgreind brot.

Sogn stækkað

Samkvæmt ráðuneytinu bárust til fullnustu 2.572 óskilorðsbundnar refsingar frá árinu 2018. Fullnusta sé hafin í 71 prósenti þessara mála.

„Aðrir hafa verið boðaðir í fangelsi en hafa ekki hafið afplánun eða eru að bíða eftir svari um fullnustu dóms með samfélagsþjónustu. Ekki hefur verið hægt að ljúka um 4 prósentum þessara mála, til dæmis vegna þess að dómur hefur fyrnst eða dómþoli hefur látist,“ segir í svarinu.

Bent er á að unnið sé að því að fjölga fangarýmum. Þegar liggi fyrir að fangelsið Sogn verði stækkað um 14 pláss og framkvæmdirnar hefjist á þessu ári.

Minni varnaðaráhrif

Biðtími afplánana hafa verið nokkuð til umræðu í vetur. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, beindi fyrirspurn til Jóns í febrúar.

Jón Gunnarsson segir að Sogn verði stækkuð á þessu ári.Vísir/Vilhelm

„Stytting biðlista eftir afplánun í fangelsi er eitt af forgangsatriðum dómsmálaráðherra. Það er óviðunandi að fjöldi dómþola skuli hefja afplánun refsingar nokkrum árum eftir að dómur fellur og slíkt leiðir jafnframt til þess að varnaðaráhrif refsingarinnar verða minni en annars,“ sagði ráðherra þá. Var samþykkt 150 milljón króna sérstakt aukaframlag til fangelsa í fjáraukalögum og 250 milljón króna varanlegt framlag.

Heildarfjöldi fangelsisrýma í landinu eru 177 en aðeins er hægt að nýta á bilinu 160 til 168 pláss á hverjum tíma, það er 90 til 95 prósent.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×