Verk sem voru falin í geymslum á uppboð Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 24. október 2021 21:31 Kári Gautason sérfræðingur hjá Bændasamtökunum og staðgengill framkvæmdastjóra. Vísir/Sigurjón Nokkur hundruð listaverk eftir marga virtustu listamenn þjóðarinnar fundust óvænt í geymslum Hótels Sögu fyrr á árinu. Bændasamtökin ákváðu að bjóða verkin upp því þau gagnist engum falin inn í geymslum.
Hótel Saga er í eigu Bændasamtakana og var tekið í notkun árið 1962. Hótelinu var lokað í nóvember í fyrra vegna afleiðinga kórónuveirufaraldursins og í september á þessu ári var það tekið til gjaldþrotaskipta. Bændasamtökin höfðu um árabil geymt málverkasafn sitt í kjallara hótelsins og í mars á þessu ári var ákveðið að taka til. „Það kemur í ljós að þarna eru 360 málverk sem kom mér mikið á óvart en þarna var líka mikið af alls kyns bókum og það var bókamarkaður í haust,“ segir Kári Gautason sérfræðingur hjá Bændasamtökunum og staðgengill framkvæmdastjóra. Ákveðið hafi verið að selja verkin. „Þau voru þarna inn í skápum og geymslum engum til gagns þannig að það var ákveðið að bjóða þau upp og bændur höfðu forkaupsrétt og sýndu mikinn áhuga. Það seldust um 100 verk í forsölu,“ segir hann. Afgangurinn fer svo á uppboð hjá Gallerý Fold og fyrsta stóra uppboðið stendur nú yfir þar sem yfir sextíu grafík verk eru til sölu. Verkin héngu inn á herbergjum Hótel Sögu eða sölum en flest eru þau frá níunda áratugnum. „Þetta er rjóminn af grafíkinni sem að var gerð þá. Allir helstu grafíklistamenn landsins eiga verk hérna. Þórður Hall, Jón Reykdal, Ragnheiður Jónsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir, Edda Jónsdóttir. Þetta eru virkilega fín verk eftir þau öll sömul og mikill fengur að fá þessi verk á markaðinn,“ segir Iðunn Vignisdóttir listmunasali hjá Gallerý Fold. Gallerý Fold verðmetur verkin fyrir uppboð og setur upp viðmiðunarverð. Iðunn Vignisdóttir listmunasali hjá Gallerý Fold.Vísir/Sigurjón „Það er allur gangur á hver verðin eru. Ég hugsa hins vegar að þessi verk fari á viðmiðunarverði þau eiga það skilið,“ segir hún. Uppboðið stendur til 27. október.
Menning Reykjavík Myndlist Salan á Hótel Sögu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira