200 þúsund dánir í Bandaríkjunum Samúel Karl Ólason skrifar 22. september 2020 19:58 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist hafa staðið sig „ótrúlega vel“ gegn Covid-19. AP/Alex Brandon
Fjöldi látinna í Bandaríkjunum vegna Covid-19 er kominn yfir 200 þúsund. Hvergi hafa fleiri dáið né smitast vegna kórónuveirunnar, svo vitað sé. Sérfræðingar segja þó að líklega sé raunverulegur fjöldi látinna mun hærri. Margir hafi verið úrskurðaðir látnir vegna annarra saka og þá sérstaklega í upphafi faraldursins. Þetta gerðist í dag en fyrr í dag tilkynnti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin að á undanfarinni viku hafi nærri því tvær milljónir greinst smitaðir og hafa þeir aldrei verið fleiri. Smituðum fjölgaði í öllum álfum heimsins nema Afríku. Í heildina hafa 31,4 milljónir smitast og 967 þúsund hafa dáið, samkvæmt opinberum tölum. Smituðum fjölgar en dauðfsöllum fækkar Samhliða mikilli fjölgun smitaðra undanfarnar vikur hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin þó greint töluverða fækkun látinna. Undanfarna viku dóu 37,7 þúsund manns vegna Covid-19 og er það um tíu prósenta lækkun á milli vikna. Í Bandaríkjunum hafa um 770 manns dáið á degi hverjum, að meðaltali, og gera líkön ráð fyrir að fjöldi látinna geti tvöfaldast fram að áramótum, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Þrátt fyrir að einungis fimm prósent jarðarbúa búi í Bandaríkjunum eru um 20 prósent þeirra sem hafa dáið í heiminum þaðan. Í sjónvarpsviðtali í dag, stærði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sig af árangri sínum í að berjast gegn heimsfaraldrinum. Lýsti hann árangrinum sem „ótrúlegum“ og „frábærum“. „Það eina sem ég hef staðið mig í almannatengslum því við höfum ekki getað sannfært fólk, í rauninni fölsku fréttirnar, um það hve frábærlega við höfum staðið okkur,“ sagði Trump. Sérfræðingar eru ekki sammála því að Trump hafi staðið sig eins vel og hann vill láta. Einn slíkur, Dr. Cedric Dark, sagði AP að allir þjóðarleiðtogar hefðu gengist sama prófið. Sumum hefði gengið vel og öðrum ekki. „Í okkar tilfelli, þá misheppnaðist okkur algerlega.“ Í upphafi faraldursins voru fá ríki, ef einhver, betur stödd en Bandaríkin til þess að takast á við faraldur af þessu tagi. Ríkið býr yfir umfangsmikilli þekkingu og hafði safnað miklum birgðum af lyfjum og verndarbúnaði. Sérfræðingar sem AP ræddi við segja ljóst að skortur á leiðsögn úr Hvíta húsinu hafi gert ástandið verra. Til að mynda sé enn þann dag í dag ekki búið að gera nokkurs konar heildstæða skimunaráætlun eða stefnu í ríkinu.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Donald Trump Tengdar fréttir Faraldurinn í miklum vexti víða um heim 20. september 2020 13:00 Aldrei fleiri greinst með veiruna í Danmörku 589 greindust með kórónuveiruna í Danmörku síðastliðinn sólarhring. Aldrei hafa fleiri smitast í Danmörku frá því að faraldurinn barst þangað til lands. 19. september 2020 12:20 Fjöldi smitaðra kominn yfir 30 milljónir Fjöldi þeirra sem staðfest er að hafi smitast af Covid-19 er kominn yfir 30 milljónir. Það er samkvæmt talningu Johns Hopkins háskólans sem byggir á opinberum tölum. 18. september 2020 06:45 Leiðtogar heimsins sagðir hafa brugðist vegna Covid-19 Þjóðarleiðtogar heimsins brugðust varðandi undirbúning fyrir mögulegan heimsfaraldur. Ekki var hlustað á viðvaranir og fjárfestingar og pólitískur áhugi á undirbúningi var ekki nægjanlegur. 14. september 2020 07:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira
Aldrei fleiri greinst með veiruna í Danmörku 589 greindust með kórónuveiruna í Danmörku síðastliðinn sólarhring. Aldrei hafa fleiri smitast í Danmörku frá því að faraldurinn barst þangað til lands. 19. september 2020 12:20
Fjöldi smitaðra kominn yfir 30 milljónir Fjöldi þeirra sem staðfest er að hafi smitast af Covid-19 er kominn yfir 30 milljónir. Það er samkvæmt talningu Johns Hopkins háskólans sem byggir á opinberum tölum. 18. september 2020 06:45
Leiðtogar heimsins sagðir hafa brugðist vegna Covid-19 Þjóðarleiðtogar heimsins brugðust varðandi undirbúning fyrir mögulegan heimsfaraldur. Ekki var hlustað á viðvaranir og fjárfestingar og pólitískur áhugi á undirbúningi var ekki nægjanlegur. 14. september 2020 07:11