Varaforseti þýska þingsins látinn eftir að hafa hnigið niður skömmu fyrir viðtal Atli Ísleifsson skrifar 26. október 2020 07:27 Thomas Oppermann hafði gegnt embætti varaforseta þýska þingsins frá árinu 2017. Getty
Thomas Oppermann, varaforseti þýska þingsins, er látinn eftir að hafa hnigið niður skömmu fyrir tökur á sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. Hann varð 66 ára. Fjöldi samflokksmanna Oppermann í þýska Jafnaðarmannaflokknum segist vera í áfalli vegna fréttanna af andláti Oppermann. Vinnumarkaðsmálaráðherrann Hubertus Heil staðfesti andlát Oppermann á Twitter-síðu sinni í morgun. Segist Heil vera mjög sorgmæddur vegna málsins. „Með ástríðu og skynsemi hefur Thomas þjónað landi okkar og jafnaðarmannastefnunni. Hugur minn er hjá fjölskyldu hans,“ sagði Heil. Die Nachricht vom plötzlichen Tode meines Kollegen und Genossen Thomas Oppermann erfüllt mich mit tiefer Trauer. Thomas hat sich mit Leidenschaft und Verstand um unser Land und die Sozialdemokratie verdient gemacht. Meine Gedanken sind bei seiner Familie.— Hubertus Heil (@hubertus_heil) October 26, 2020 DW segir frá því að Oppermann hafi hnigið niður í gærkvöldi þar sem sjónvarpsstöðin ZDF var að fara að ræða við hann. Oppermann hafi í kjölfarið verið fluttur á sjúkrahús og lést hann svo snemma í morgun. Oppermann hóf stjórnmálaferil sinn á níunda áratugnum, fyrst í Neðra Saxlandi þar sem hann gegndi meðal annars embætti ráðherra vísindamála. Færði hann sig svo yfir í landsmálin. Oppermann greindi frá því í sumar að hann hugðist ekki sækjast eftir endurkjöri í þingkosningunum sem fyrirhugaðar eru á næsta ári. Hann hafði gegnt embætti varaforseta þingsins frá því í október 2017. Áður hafði hann gegnt stöðu þingflokksformanns hjá Jafnaðarmannaflokknum. Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar sagði að Oppermann hafi hnigið í miðju viðtali, en hið rétta er að það gerðist skömmu áður en viðtalið átti að hefjast.
Þýskaland Andlát Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Sjá meira