Nýjar hæðir í sýnatökum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 14. janúar 2022 11:54 Von er á miklum fjölda barna í sýnatökur á morgun. vísir/vilhelm Heilsugæslan er komin yfir þolmörk þegar kemur að sýnatöku vegna kórónuveirunnar að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Búist er við miklu álagi á morgun þegar yfir 900 börn mæta í sýnatöku en til skoðunar er að lengja opnunartíma.
Mikið álag hefur verið á starfsfólki Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna Covid-prófa. Í þessari viku hafa allt að sex þúsund sýni verið tekin á dag á Suðurlandsbrautinni þar sem heilsugæslan býður upp á sýnatöku. „Það er búið að vera álag alla vikuna og þá sérstaklega mikið álag hérna að taka sýnatöku hjá börnum. Búið að vera það alla vikuna og byrjaði svo sem í síðustu viku. Það er fyrirséð að það verði áfram þannig að þetta eru alveg nýjar hæðir sem við erum að fara í í sýnatökum,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hvað mest hefur verið að gera hafa eitt þúsund börn mætt í sýnatöku. „Þessar tölur sem ég er að tala um, þegar ég er að tala um þúsund börn, það eru átta ára og yngir þannig að þau eru álíka mörg sem eru átta ára og eldri. Átta til átján þannig að þetta eru ansi mörg börn.“ Yfir níu hundruð börn mæta á morgun Ragnheiður segir það taka fimm sinumm lengri tíma að taka sýni hjá barni en fullorðnum sem geri allt miklu erfiðara. Þá er búist við miklu álagi á morgun þegar fjöldi barna mætir í sýnatöku enn eina ferðina. „Bara 900 börn eru að losna úr sóttkví á morgun en það eru þau sem voru útsett á mánudaginn.“ Börn sem mæta í covid-próf fara nú í sér röð en Ragnheiður segir það fyrirkomulag hafa reynst vel. „Við teljum að það sé betra því þarna erum við okkar færasta fólk til þess að taka þessi sýni og fólkið sem er með bestu reynsluna og mestu reynsluna og flest fagfólk þar líka. Þannig það er ástæðan fyrir því að við reynum að taka þau þarna öðru megin.“ Ragnheiður segir stöðuna erfiða og álagið á allt starfsfólk mjög mikið. „Við erum náttúrulega komin yfir þolmörkin myndi ég segja þannig við erum bara einhvern veginn að reyna hvern dag að bregðast við hvað við getum.“ Hún telur þó ekki þurfa að koma til þess að fólki verði vísað frá. „Ég hugsa að við myndum nú seint vísa fólki frá en við munum bara reyna að bregast við á hverjum degi hvað við getum og þá hvort við opnum annars staðar eða á fleiri stöðvar eða köllum til fleira fagfólk eins og við höfum verið að gera.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Umboðsmaður barna beinir því til HSS að gera úrbætur á sýnatöku barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur sent forstjóra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja erindi þar sem því er beint til stofnunarinnar að gera úrbætur á framkvæmd sýnatöku barna vegna Covid-19. 13. janúar 2022 09:51 1.133 greindust innanlands 1.133 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 88 á landamærum. 14. janúar 2022 10:32 Lokuðu leikskólanum í dag vegna stórrar hópsýkingar 38 börn og starfsmenn í leikskólanum Sæborg í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Tvær deildir af fjórum hafa verið lokaðar seinustu daga vegna þessa en ákveðið var að loka skólanum alfarið í dag og á morgun eftir að þriðja deildin var send í sóttkví. 13. janúar 2022 16:44 Seljaskóla skellt í lás fram á þriðjudag Allt skólastarf fellur niður í Seljaskóla á morgun, föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17. janúar vegna fjölda nemenda og starfsfólks em greinst hefur verið Covid-19. Frístundastarf og íþróttaæfingar hjá ÍR falla einnig niður. 13. janúar 2022 14:05 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira
Umboðsmaður barna beinir því til HSS að gera úrbætur á sýnatöku barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur sent forstjóra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja erindi þar sem því er beint til stofnunarinnar að gera úrbætur á framkvæmd sýnatöku barna vegna Covid-19. 13. janúar 2022 09:51
1.133 greindust innanlands 1.133 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 88 á landamærum. 14. janúar 2022 10:32
Lokuðu leikskólanum í dag vegna stórrar hópsýkingar 38 börn og starfsmenn í leikskólanum Sæborg í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Tvær deildir af fjórum hafa verið lokaðar seinustu daga vegna þessa en ákveðið var að loka skólanum alfarið í dag og á morgun eftir að þriðja deildin var send í sóttkví. 13. janúar 2022 16:44
Seljaskóla skellt í lás fram á þriðjudag Allt skólastarf fellur niður í Seljaskóla á morgun, föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17. janúar vegna fjölda nemenda og starfsfólks em greinst hefur verið Covid-19. Frístundastarf og íþróttaæfingar hjá ÍR falla einnig niður. 13. janúar 2022 14:05