Maður á sjötugsaldri handtekinn fyrir að tæla ólögráða stúlkur Nadine Guðrún Yaghi skrifar 9. júní 2021 18:50 Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu, bæði hér á landi og erlendis. vísir Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn í síðustu viku eftir að hafa sett sig í samband við fimm ólögráða stúlkur, klæmst við þær og reynt að fá þær til að hitta sig. Eftir að manninum var sleppt úr haldi er hann grunaður um að hafa ítrekað brotið af sér með sams konar hætti.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók manninn í síðustu viku eftir ábendingar um að hann hefði sett sig í samband við stúlkurnar fimm og viðhaft við þær kynferðislegt tal. Þá á hann ítrekað að hafa reynt að mæla sér mót við stúlkurnar. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu, bæði hér á landi og erlendis. Hann var einn af þeim reyndi að hitta 13 ára gamla tálbeitu í fréttaskýringaþættingum Kompás árið 2006. Heldur brotunum áfram Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að mál af þessum toga sé á borði lögreglu. Hann geti þó ekki veitt frekari upplýsingar. Ævar Pálmi Pálmasson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar. Heimildir fréttastofu herma að sími og tölva mannsins hafi verið gerð upptæk af lögreglu í síðustu viku en að það hafi þó ekki komið í veg fyrir að hann héldi brotum sínum áfram. Fjölmargar tilkynningar frá foreldrum hafi borist lögreglu vegna mannsins á síðustu dögum. „64 ára, myndarlegur og góður maður“ Meðal annars tilkynning frá móður sem tók málin í sínar hendur. Hún hóf samtal við manninnn á samskiptamiðlinum Snapchat á föstudag í síðustu viku. Móðirin þóttist vera 16 ára stúlka. Maðurinn greindi þá frá því að hann væri 64 ára, myndarlegur og góður maður. Þá viðhafði hann kynferðislegt tal og reyndi að mæla sér mót við þann sem hann hélt að væri 16 ára stúlka. Maðurinn segist vera 64 ára, „myndarlegur og góður“.vísir Aðspurður segir Ævar að þegar menn brjóti ítrekað af sér með þessum hætti séu úrræði lögreglu almennt af skornum skammti. Skýra þurfi úrræði lögreglu hvað svona mál varðar. Lögregla fylgist þó vel með og það sé mikilvægt að fólk tilkynni brot sem þessi tafarlaust til lögreglu.
Kynferðisofbeldi Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Sjá meira