Innlent

Mikil þjálfun fram­undan í notkun raf­­byssa

Lillý Valgerður Pétursdóttir og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Ólaf Örn Bragason, yfirmaður menntamála lögreglu segir mikla þjálfun framundan í notkun rafvopna.
Ólaf Örn Bragason, yfirmaður menntamála lögreglu segir mikla þjálfun framundan í notkun rafvopna. Vísir/Egill

Reglugerð varðandi heimild lögreglu til að notast við rafbyssur hefur tekið gildi. Næsta skref er að kaupa vopnin og svo þarf að þjálfa lögreglumenn til að nota þau. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við Ólaf Örn Bragason, yfirmann menntamála lögreglu um þá þjálfun sem framundan er.

Ólafur sagðist gera ráð fyrir því að hefðbundið innkaupaferli hins opinbera hefjist á næstu dögum. Þegar samningum ljúki sé hægt að áætla hvenær vopnin séu væntanleg til landsins. Samkvæmt Ólafi kemur framleiðandinn með ákveðinn þátt í þjálfuninni en auk þess verða sérstök námskeið sem væntanlegir lögreglumenn þurfa að sitja.

„Ég hef sett mig í samband við norska lögregluháskólann og óskað eftir námskrá þaðan og samstarfi um innleiðinguna hjá okkur; að þjálfa upp lögreglumennina,“ segir Ólafur. „Ég geri ráð fyrir að í raun og veru séum við að horfa á haustið varðandi þessa þjálfun. Það er mikil þjálfun framundan núna.“

Ólafur telur að notkunin á rafvopnum muni hefjast í lok árs eða byrjun næsta. Það verði menntaðir lögreglumenn sem munu nota þau en þó séu talsvert af afleysingafólki innan lögreglunnar. „Því miður eru allt of margir ófagmenntaðir lögreglumenn. Við erum auðvitað að reyna bæta úr því hérna, höfum tekið inn í Háskólann á Akureyri áttatíu og fimm nemendur í starfsnám og ætlum að gera það aftur í haust. Þannig að það er nóg að gera hjá okkur í þjálfun við að efla menntun lögreglumanna.“


Tengdar fréttir

Lög­reglan hefur nú heimild til að nota raf­byssur

Ný reglugerð dómsmálaráðherra um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna var birt í Stjórnartíðindum í dag og tekur þegar gildi. Helst breytingin frá fyrri reglugerð er heimild til handa lögreglunni til að nota svokölluð rafvarnarvopn, rafbyssur í daglegu máli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×