Helgi Hrafn einn á móti Miðflokksmönnum í málþófi um innflytjendur Snorri Másson skrifar 4. maí 2021 23:12 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að hælisleitendakerfið sé misnotað hér á landi. Vísir/Vilhelm Miðflokksmenn hafa frá því klukkan þrjú í dag haldið uppi umræðum á Alþingi um frumvarp ríkisstjórnarinnar um málefni innflytjenda. Það er að sögn þingmanns Vinstri grænna komið út í málþóf.
Ræðurnar eru orðnar 97 í dag. Frumvarpið lýtur að því að skýra hlutverk Fjölmenningarseturs og veita í starfsemi þess 23 milljónum króna á árinu. Þingmenn Miðflokksins hafa miklar efasemdir um frumvarpið og telja að það muni auka straum innflytjenda og flóttamanna til landsins. Þessu mótmæla stjórnarþingmenn og einnig Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sem hefur staðið í ströngu í andsvörum við Miðflokksmenn í kvöld. Helgi hefur að segja má tekið vaktir á móti Brynjari Níelssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins í að veita Miðflokkinum andsvör í kvöld. Helgi hefur þó verið öllu iðnari við kolann en Brynjar. Ræður hans eru 22 en Brynjars aðeins níu og áttu sér allar stað innan sömu klukkustundar. Helgi Hrafn Gunnarsson pírati hefur flutt 22 ræður það sem af er kvöldi.Vísir/Vilhelm Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hélt því fram í síðustu ræðu sem hann hélt, að hælisleitendakerfið væri misnotað hér á landi. „Enda er ekki hægt að gera ráð fyrir að glæpagengi sem taka aleiguna af fólki og setja það í lífshættu muni vilja fylgja í öllum tilvikum settum reglum,“ sagði Sigmundur. Hann sagði þá að „misnotkun“ á kerfinu bitnaði mest á þeim sem mest þyrftu á kerfinu að halda. Helgi Hrafn er ósammála þingmönnunum. „Mér finnst gríðarlega mikilvægt að fólk sem komi hingað, hælisleitendur eða kvótaflóttamenn, hafi fullt færi á að aðlagast íslensku samfélagi og að þeir séu aðstoðaðir við það. Þess vegna er ég hlynntur þessu frumvarpi sem við erum að ræða núna og þess vegna skil ég ekki hvers vegna háttvirtir þingmenn eru á móti því. Rökin sem þeir hafa fært fram og ég er búinn að heyra milljón sinnum standast ekki mína skoðun og ég er ósammála háttvirtum þingmönnum um áhrif frumvarpsins,“ sagði Helgi. Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna segir Miðflokksmenn standa í málþófi vegna slæms gengis í skoðanakönnunum, en síðast mældust þeir með 8% fylgi, sem er vissulega lágt í sögulegu samhengi. „Miðflokknum gengur illa í skoðanakönnunum og fer í málþóf um innflytjendur. Fátt nýtt undir sólinni,“ skrifar Kolbeinn. Þess er skemmst að geta að Miðflokksmenn komust nálægt Íslandsmeti í málþófi vegna þriðja orkupakkans sumarið 2019, sem stóð í fleiri sólarhringa.
Miðflokkurinn Píratar Alþingi Innflytjendamál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Hælisleitendur Tengdar fréttir Stoltur af því að vera hvítur, miðaldra karlmaður Deilt er um frumvarp um samræmda móttöku flóttafólks. Þingmenn Miðflokksins mótmæla því og telja að það muni leiða til holskeflu hælisumsókna og kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. 4. maí 2021 18:12 Ríkisstjórnin héldi velli og Sósíalistar næðu inn Vinstri hreyfingin - grænt framboð bætir við sig 2% prósentustigum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup og mælist með 14,3% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag. Í kosningunum 2017 fékk flokkurinn 16,9% fylgi. 3. maí 2021 23:46 Ber orðræðu Miðflokksins um útlendingamál saman við gyðingahatur Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð þingmanna Miðflokksins vegna umræðu um málefni innflytjenda sem fór fram á Alþingi í dag og kvöld. Sagði hann meðal annars orðræðu þeirra líkjast fordómafullri orðræðu um samkynhneigða á tíunda áratugi síðustu aldar og gyðingahatur. 16. febrúar 2021 21:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Innlent Fleiri fréttir Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti Sjá meira
Stoltur af því að vera hvítur, miðaldra karlmaður Deilt er um frumvarp um samræmda móttöku flóttafólks. Þingmenn Miðflokksins mótmæla því og telja að það muni leiða til holskeflu hælisumsókna og kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. 4. maí 2021 18:12
Ríkisstjórnin héldi velli og Sósíalistar næðu inn Vinstri hreyfingin - grænt framboð bætir við sig 2% prósentustigum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup og mælist með 14,3% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag. Í kosningunum 2017 fékk flokkurinn 16,9% fylgi. 3. maí 2021 23:46
Ber orðræðu Miðflokksins um útlendingamál saman við gyðingahatur Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð þingmanna Miðflokksins vegna umræðu um málefni innflytjenda sem fór fram á Alþingi í dag og kvöld. Sagði hann meðal annars orðræðu þeirra líkjast fordómafullri orðræðu um samkynhneigða á tíunda áratugi síðustu aldar og gyðingahatur. 16. febrúar 2021 21:02