„Ég skil alveg af hverju þeir þorðu ekki að dæma þetta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2021 15:31 Spennan var mikil í toppslag Keflavíkur og Hauka og það komu upp mörg umdeild atvik sem Domino´s Körfuboltakvöld fór betur yfir. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í Domino´s deildinni gagnrýndi KKÍ harðlega fyrir valið á dómurum á toppslag Keflavíkur og Hauka í vikunni en þar töpuðu Keflavíkurkonur fyrsta leik sínum á leiktíðinni. Domino´s Körfuboltakvöld ræddi dómgæsluna í leiknum. „Það er mikilvægt að hafa reynslumikla dómara á svona leik, dómara sem þora að taka af skarið. Ég skil alveg að þeir þorðu kannski ekki að dæma þetta sérstaklega efir að hafa dæmt fimmtu villuna á Söru sem ég er ekki sammála að hafi verið villa,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, sérfræðingur í Domino´s Körfuboltakvöldi. „Þá verður þetta svolítið erfitt og þetta var mjög jafn leikur. Þeir þorðu bara ekki að taka af skarið eins og stelpurnar hans Jonna,“ sagði Ólöf Helga. Kjartan Atli Kjartansson, Ólöf Helga Pálsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir fóru síðan yfir umdeildu dómana í leiknum, lið fyrir lið. Þau skoðuðu það þegar skotklukkan var ekki endurnýjuð þegar boltinn fór í hringinn í lokasókn Keflavíkur í venjulegum leiktíma sem endaði með því að Keflavík missti boltann. Svo var það hin umdeilda og flestra mati mjög ósanngjarna fimmta villan á Söru Rún Hinriksdóttur í framlengingunni. „Hún kemur ekki við Daniela Wallen Morillo,“ sagði Kjartan Atli. Einnig var skoðað lokaskot Keflavíkurliðsins í framlengingunni þar sem virtist vera brotið á Emelíu Ósk Gunnarsdóttur en ekkert var dæmt. „Þegar maður sér þetta svona hægt þá er þetta alveg púra villa,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir. „Ég held að ef að það hefðu verið reynslumeiri dómarar á leiknum og þetta á undan hefi ekki gerst þá hefði verið flautað þarna,“ sagði Pálína. Það má sjá öll þessi dæmi og umræðuna um dómgæsluna í leiknum hér fyrir neðan. Klippa: Dominos Körfuboltakvöld: Dómarnir umdeildu í leik Keflavíkur og Hauka Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild kvenna Körfuboltakvöld Keflavík ÍF Haukar Íslenski körfuboltinn Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Djokovic segir þjálfaranum upp Sport Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fótbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Handbolti „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Handbolti „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ Körfubolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn Sjónvarpið í svarthvítu og forsætisráðherra ekki fædd Opinn fyrir öllu á Íslandi Lögmál leiksins: Dream Team eða Redeem Team? Lore: „Tilfinningin er frábær“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 86-72 | Keflavík í bikarúrslit annað árið í röð Umfjöllun, myndir og viðtöl: Þór Ak. - Grindavík 77-75 | Þór í bikarúrslit eftir hörkuleik Martin með stoðsendinguna í troðslu ársins Sjá meira
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í Domino´s deildinni gagnrýndi KKÍ harðlega fyrir valið á dómurum á toppslag Keflavíkur og Hauka í vikunni en þar töpuðu Keflavíkurkonur fyrsta leik sínum á leiktíðinni. Domino´s Körfuboltakvöld ræddi dómgæsluna í leiknum. „Það er mikilvægt að hafa reynslumikla dómara á svona leik, dómara sem þora að taka af skarið. Ég skil alveg að þeir þorðu kannski ekki að dæma þetta sérstaklega efir að hafa dæmt fimmtu villuna á Söru sem ég er ekki sammála að hafi verið villa,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, sérfræðingur í Domino´s Körfuboltakvöldi. „Þá verður þetta svolítið erfitt og þetta var mjög jafn leikur. Þeir þorðu bara ekki að taka af skarið eins og stelpurnar hans Jonna,“ sagði Ólöf Helga. Kjartan Atli Kjartansson, Ólöf Helga Pálsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir fóru síðan yfir umdeildu dómana í leiknum, lið fyrir lið. Þau skoðuðu það þegar skotklukkan var ekki endurnýjuð þegar boltinn fór í hringinn í lokasókn Keflavíkur í venjulegum leiktíma sem endaði með því að Keflavík missti boltann. Svo var það hin umdeilda og flestra mati mjög ósanngjarna fimmta villan á Söru Rún Hinriksdóttur í framlengingunni. „Hún kemur ekki við Daniela Wallen Morillo,“ sagði Kjartan Atli. Einnig var skoðað lokaskot Keflavíkurliðsins í framlengingunni þar sem virtist vera brotið á Emelíu Ósk Gunnarsdóttur en ekkert var dæmt. „Þegar maður sér þetta svona hægt þá er þetta alveg púra villa,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir. „Ég held að ef að það hefðu verið reynslumeiri dómarar á leiknum og þetta á undan hefi ekki gerst þá hefði verið flautað þarna,“ sagði Pálína. Það má sjá öll þessi dæmi og umræðuna um dómgæsluna í leiknum hér fyrir neðan. Klippa: Dominos Körfuboltakvöld: Dómarnir umdeildu í leik Keflavíkur og Hauka Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild kvenna Körfuboltakvöld Keflavík ÍF Haukar Íslenski körfuboltinn Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Djokovic segir þjálfaranum upp Sport Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fótbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Handbolti „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Handbolti „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ Körfubolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn Sjónvarpið í svarthvítu og forsætisráðherra ekki fædd Opinn fyrir öllu á Íslandi Lögmál leiksins: Dream Team eða Redeem Team? Lore: „Tilfinningin er frábær“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 86-72 | Keflavík í bikarúrslit annað árið í röð Umfjöllun, myndir og viðtöl: Þór Ak. - Grindavík 77-75 | Þór í bikarúrslit eftir hörkuleik Martin með stoðsendinguna í troðslu ársins Sjá meira
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 86-72 | Keflavík í bikarúrslit annað árið í röð