Svíar og Finnar uppfylli öll skilyrði NATO

AFP/MANDEL NGAN

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hét í dag Svíum og Finnum fullum stuðningi við umsókn þeirra um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO). AFP-fréttastofan greinir frá.

Biden sagði ríkin uppfylla öll skilyrði um inngöngu í bandalagið. Forsetinn ávarpaði fréttamenn með Magdalenu Anderssen, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Sauli Niinistö, forseta Finnlands, sér við hlið, en þau funduðu í Hvíta húsinu í dag vegna umsóknar ríkjanna um aðild að NATO.

„Þau uppfylla öll skilyrði NATO og vel rúmlega það,“ sagði Biden og bætti því að Bandaríkin myndu styðja inngöngu ríkjanna.

Tilbúinn að ræða allar áhyggjur vegna aðildar

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að styðja umsóknina en samþykki allra 30 aðildarríkja NATO þarf til þess að ný ríki geti gengið inn í bandalagið.

„Hvor­ugt þess­ara ríkja hef­ur tekið skýra af­stöðu gegn hryðju­verka­sam­tök­um,“ sagði Er­dog­an í vikunni, en hann vill meina að rík­in hafi stutt við „hryðju­verk­a­starf­semi“ með því að leyfa Kúr­d­um að sinna stjórn­mála­starfi í lönd­um sín­um.

Niinistö tók einnig til máls á blaðamannafundinum fyrir utan Hvíta húsið í dag og sagði að Finnar myndu ræða öll þau mál við Tyrki sem þeir hefðu áhyggjur af, ásamt því að fordæma alla hryðjuverkastarfsemi.

„Við fordæmum alla hryðjuverkastarfsemi og höfum bundið okkar að berjast formlega gegn slíkri starfsemi,“ sagði Niinistö.

„Við erum tilbúin að ræða allar áhyggjur varðandi aðild okkar á opin og uppbyggilegan hátt,“ sagði hann jafnframt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert