Fótbolti

Unnu 46 leiki í röð eftir stórleik Þóru og sigurmark Margrétar

Sindri Sverrisson skrifar
Wendie Renard verst Elínu Mettu Jensen í vináttulandsleik fyrir ári síðan, sem Frakkar unnu 4-0.
Wendie Renard verst Elínu Mettu Jensen í vináttulandsleik fyrir ári síðan, sem Frakkar unnu 4-0. Getty/Tim Clayton

Franska kvennalandsliðið í fótbolta náði að vinna 46 leiki í röð í undankeppnum stórmóta frá því að liðið tapaði á Laugardalsvelli sumarið 2007.

Einn fræknasti sigurinn í sögu íslenska landsliðsins var 1-0 sigurinn gegn hinu ógnarsterka liði Frakka fyrir þrettán árum. Þóra Björg Helgadóttir átti algjörlega stórkostlegan leik í marki Íslands og Margrét Lára Viðarsdóttir, þá tvítug, náði að þröngva boltanum í markið eftir sendingu Dóru Maríu Lárusdóttir þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.

Svo fór að Frakkar unnu þó riðilinn sem liðin léku í en bæði liðin komust þó í lokakeppnina, á EM í Finnlandi 2009, sem jafnframt var fyrsta stórmót Íslands.

Sigri Íslands gegn Frakklandi var lýst sem besta sigri liðsins frá upphafi.Úr DV 18. júní 2007

Þó að árangur Frakka í lokakeppnum stórmóta hafi valdið vonbrigðum hefur liðið ekki stigið feilspor í undankeppnunum frá því í leiknum gegn Íslandi. Það er að segja þar til í gær. Liðið vann því alla sína leiki í fimm undankeppnum í röð.

Í gær gerðu Frakkar markalaust jafntefli við Austurríki á útivelli. Liðin eru því með 16 stig hvort í baráttunni um efsta sæti G-riðils en eiga eftir að mætast í Frakklandi eftir mánuð. Liðið sem endar í 2. sæti gæti endað fyrir ofan Ísland í baráttunni um að komast beint á EM og jafnteflið í gær hentar Íslandi því ekki vel.

Kurr hefur verið í franska hópnum eftir að fyrirliðinn Amandine Henry var ekki valin í hópinn fyrir síðustu leiki, en landsliðsþjálfarinn Corinne Diacre hélt því fram að hún þyrfti meiri tíma til að komast í leikæfingu eftir meiðsli. Þó hafði Henry leikið síðustu leiki með Söru Björk Gunnarsdóttur og öðrum liðsfélögum sínum í Evrópumeistaraliði Lyon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×