Yfirlæknar á Landspítalanum vilja óháða úttekt á flutningi krabbameinsskimunar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 26. febrúar 2021 18:22 Samtök yfirlækna á Landspítala segja að yfirvöld hafi hunsað álit fjölmargra fagaðila þegar ákvörðun var tekin um að allar rannsóknir á leghálsskimunarsýnum verði fluttar frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. VISIR/VILHELM Samtök yfirlækna á Landspítala segja að yfirvöld hafi hunsað álit fjölmargra fagaðila þegar ákvörðun var tekin um að allar rannsóknir á leghálsskimunarsýnum verði fluttar frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. „
Sú ákvörðun var tekin þvert á nýleg álit skimunarráðs, embættis landlæknis, meirihluta fagráðs um leghálsskimanir og verkefnastjórnar um framkvæmd breytinga á krabbameinsskimunum.“ Þetta kemur fram í ályktun Samtaka yfirlækna á Landspítala um breytingar á skipulagi skimana fyrir leghálskrabbameini. „Samtök yfirlækna á Landspítala (SYL) telja að það sé með ólíkindum að yfirvöld hafi hunsað álit áðurnefndra fagaðila og tekið þá ákvörðun að nýta ekki fullkominn nýjan búnað og faglega þekkingu á sýkla- og veirufræðideild Landspítala til HPV-greininga, sem og greiningarhæfi og faglega sérþekkingu meinafræðideildar til að sinna þessari mikilvægu heilbrigðisþjónustu,“ segir í tilkynningu til fjölmiðla. Landspítalanum vel treystandi „Greining á leghálsskimunarsýnum er algeng rannsókn og rannsóknadeildum Landspítalans er vel treystandi til að gera slíkar rannsóknir á sama hátt og aðrar flóknar rannsóknir. Gæði og öryggi slíkra rannsókna yrði að sjálfsögðu tryggt á sama hátt og fyrir aðrar rannsóknir sem framkvæmdar eru innan veggja Landspítalans.“ Samtökin fara fram á að óháðir aðilar geri úttekt á ferli málsins innan stjórnsýslunnar og segir í tilkynningunni að um vantraust stjórnvalda á íslenskum rannsóknarstofum sé að ræða. „Spurningar vakna um hvað liggi til grundvallar þessari ákvörðun svo sem um vantraust stjórnvalda á íslenskum rannsóknastofum, ákvarðanir innan stjórnsýslunnar, sem eru ekki í samræmi við faglega ráðgjöf eða hvort aðrir hagsmunir ráði för. Samtök yfirlækna á Landspítala fara fram á að óháðir aðilar geri úttekt á ferli alls málsins innan stjórnsýslunnar,“ segir í tilkynningunni. Fjöldi sýna stóðu óhreyfð í þessum pappakössum um tíma.EGILL AÐALSTEINSSON Töluvert hefur verið fjallað um ofangreinda ákvörðun stjórnvalda. Forstjóri heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu baðst nýlega afsökunar á töfum við greiningu leghálssýna. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar lagði fram svipaða beiðni í vikunni en hún fer fram á að heilbrigðisráðherra vinni skýrslu fyrir Alþingi um forsendur og áhrif breytinga á skimun fyrir krabbameinum í leghálsi. Skýrslan verði unnin af óháðum aðila.
Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Landspítalinn Tengdar fréttir „Traustið er laskað“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir tímabært að skoða hvernig staðið hafi verið að breytingum á fyrirkomulagi leghálsskimunar. Rýna þurfi málið, forsendur og afleiðingar þess. 17. febrúar 2021 16:59 Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27. janúar 2021 19:01 Úttekt landlæknis: Nýttu ekki innra gæðaeftirlit til að fá betri yfirsýn Leitarmiðstöð Krabbameinsfélags Íslands (LKÍ) hefði getað nýtt ákveðna hluta innra gæðaeftirlits síns til að hafa betri yfirsýn á gæði frumugreininga í heild. Þetta er ein af niðurstöðum hlutaúttektar embættis landlæknis á LKÍ sem ákveðið var að ráðast í í kjölfar tilkynningar til embættisins um alvarlegt atvik í júlí 2020. 24. febrúar 2021 14:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Sjá meira
„Traustið er laskað“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir tímabært að skoða hvernig staðið hafi verið að breytingum á fyrirkomulagi leghálsskimunar. Rýna þurfi málið, forsendur og afleiðingar þess. 17. febrúar 2021 16:59
Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27. janúar 2021 19:01
Úttekt landlæknis: Nýttu ekki innra gæðaeftirlit til að fá betri yfirsýn Leitarmiðstöð Krabbameinsfélags Íslands (LKÍ) hefði getað nýtt ákveðna hluta innra gæðaeftirlits síns til að hafa betri yfirsýn á gæði frumugreininga í heild. Þetta er ein af niðurstöðum hlutaúttektar embættis landlæknis á LKÍ sem ákveðið var að ráðast í í kjölfar tilkynningar til embættisins um alvarlegt atvik í júlí 2020. 24. febrúar 2021 14:11